Berðu Vivaldi saman við aðra vafra
Af hverju að velja Vivaldi? Við teljum hann einfaldlega vera besta vafrann. En ekki trúa okkur í blindni. Skoðaðu þessa samanburðarsíðu og veldu út frá því hvað hentar þér best!
Afkastageta
Vivaldi er sérsníðanlegasti vafri í heimi! Af hverju skiptir það máli fyrir afkastagetu þína? Það er ekki flókið. Þú getur á einfaldan hátt aðlagað Vivaldi að þínu vinnuflæði.
Allir nota vafrann sinn til að koma hlutum í verk: við vinnu, nám, innkaup, rannsóknir eða einfaldlega til afþreyingar. Vivaldi er stútfullur af gagnlegum eiginleikum til að lágmarka truflanir og hjálpa þér að klára verkefnin á skilvirkan hátt.
Með flipastjórnunareiginleikum, óteljandi sérsniðnum flýtilyklum og öflugum innbyggðum tólum, geturðu afkastað meiru og skemmt þér konunglega í leiðinni.
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | |||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Flipabunkar í tveimur línum | |||||||
| Flipastaflar | |||||||
| Óteljandi flipar í margskiptum skjá | |||||||
| Sérsníðanleg staðsetning flipastiku | |||||||
| Sérsníðanleg staðsetning veffangastiku | |||||||
| Regluleg endurhlöðun á flipum | |||||||
| Settu upp vefsíður sem borðtölvu öpp (PWA) | |||||||
| Sérsniðnir fjölvar | |||||||
| Sérsníðanlegar músabendingar | |||||||
| Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar | |||||||
| Pomodoro klukka | |||||||
| Tékklisti | |||||||
| Sérsniðin öpp og síður á hliðarstikunni í vafranum | |||||||
| Flipar lagðir í dvala handvirkt (sparnar minni) | |||||||
| Hvíldarhamur | |||||||
| Innbyggður ritill fyrir minnismiða | |||||||
| Innbyggður póstur | |||||||
| Innbyggt dagatal | |||||||
| Vinnusvæði |
Vivaldi leggur áherslu á flipastjórnun og afköst - með einstaka innbyggða eiginleika sem gerir það að verkum að hann sker sig úr fjöldanum.
Friðhelgi
Flestir vafrar halda því fram að þeir standi vörð um friðhelgi þína, en viðskiptamódel þeirra byggja oftast á persónugreiningum eða njósnum.
Við hjá Vivaldi höfnum þessum vinnubrögðum og teljum að það sem þú gerir í vafranum þínum sé þitt mál. Við útvegum tólin sem þú þarft þér til verndar lymskulegum njósnum tæknirisanna, eins og innbyggða auglýsinga- og rekjavörn með sérsniðnum listum, Proton VPN og samstillingu sem er dulkóðuð enda á milli. Þú ert við stjórnvölinn hjá Vivaldi!
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | |||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Innbyggð auglýsingavörn | |||||||
| Vernd gegn rekjurum | |||||||
| Sérsniðnir lokunar listar | |||||||
| Örugg samstilling með dulkóðuðum lyklum | |||||||
| Engin rakning eða njósnir um notendur | |||||||
| Frítt ótakmrkað VPN | |||||||
| Evrópskur | |||||||
| Gögnin geymd í Evrópu |
Friðhelgi er sjálfgefin: Engin persónugreining, með innbyggðri rekjara- og auglýsingavörn og ókeypis VPN þjónustu frá Proton.
Innbyggðir eiginleikar
Markmið okkar hjá Vivaldi er að skaffa vafra sem er með allt sem þú þarft innbyggt. Mantran okkar er "vafri sem lagar sig að þér - þú þarft ekki að laga þig að honum", og að því að við erum öll með ólíkar þarfir, þýðir það að vafrinn okkar er stappfullur af öflugum eiginleikum og stillingum.
Ef það sem þig vantar er ekki þegar innbyggt í Vivaldi, geturðu sett upp viðbætur úr Chrome vefversluninni (þær virka líka frábærlega í Vivaldi), eða kíkt á spjallborðið okkar og beðið um nýjan eiginleika. Við elskum að fá endurgjöf frá notendum: það er þannig sem bætum okkur því við erum hvorki með hluthafa né fjárfesta sem þrýsta á okkur.
Vivaldi er með eiginleika sem þig langar í, og eiginleika sem þú vissir ekki að þig vantaði og gætir ekki lifað áns.
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | |||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Tól til skjáskota í vafranum | |||||||
| Einka þýðingatól fyrir heilar síður | |||||||
| Sprettiglugga myndbönd á hvaða vefsíðu sem er | |||||||
| Sérsniðin þemu sem hægt er að deila | |||||||
| Breytanlegar tækjastikur | |||||||
| Fullkomin samhæfni við Chromium viðbætur | |||||||
| Sérsniðnar leitarvélar | |||||||
| Tól til þess að breyta útliti síðna | |||||||
| Leshamur | |||||||
| Innbyggður póstur | |||||||
| Innbyggt dagatal | |||||||
| Innbyggður lesari fyrir strauma | |||||||
| Myndræn saga með tölfræðiupplýsingum | |||||||
| Eiginleikar myndar | |||||||
| Slökkva/kveikja á hreyfimyndum | |||||||
| Slökkva/kveikja á niðurhali mynda | |||||||
| Laus við gervigreind | |||||||
| Fela viðmót sjálfkrafa | |||||||
| Borðtölvuviðmót á Android |
Póstur, dagatal, lesari fyrir strauma, minnismiðar og þýðingar - allt innbyggt, engar viðbætur nauðsynlegar.
Algengar spurningar
-
Er Vivaldi ókeypis?
Já. Vivaldi fyrir borðtölvur er ókeypis til niðurhals og notkunar á Windows, macOS og Linux. Snjallsímaútgáfan okkar er sömuleiðis ókeypis fyrir Android- og iOS tæki.
-
Hvernig þénar Vivaldi peninga?
Við höfum enga utanaðkomandi fjárfesta sem vilja láta okkur gera vafasama hluti í óþreytandi leit sinni að sífellt meiri hagnaði. Við hvorki rekjum ferðir þínar né búum til prófíla um þig. Við söfnum ekki gögnum. Svona greiðum við reikningana okkar um leið og við smíðum vafrann sem við viljum nota:
- Samningar við samstarfsaðila um leitarvélar
- Samningar við samstarfsaðila um bókamerki
- Samningar við samstarfsaðila gegnum Direct Match
- Framlög
-
Hver á Vivaldi?
Já, það gerum við! Vivaldi er í eigu starfsmanna. Við höfum enga utanaðkomandi fjárfesta sem krefjast þess að við gerum vafasama hluti til að auka tekjur þeirra. Teymið okkar er alþjóðlegt, en við erum með höfuðstöðvar í Ósló í Noregi, og við erum með skrifstofur í Reykjavík á Íslandi. Þar hýsum við líka netþjónana okkar þar sem dulkóðuð notendagögn eru geymd – samkvæmt ströngum reglum Evrópusambandsins um gagnavernd, friðhelgi og gagnaþjónustu. Svona viljum við hafa hlutina.
-
Hvernig er Vivaldi öðruvísi?
Það er hið mikla úrval eiginleika. Það er hinir óendanlegu möguleikar í aðlaga að persónulegum óskum. Það er ástríða okkar fyrir öryggi og persónuvernd. Það er hin evrópska arfleifð okkar og starfsmannamiðaði strúktúrinn.
En það er líka það sem við gerum ekki: við njósnum ekki um þig og byggjum ekki prófíl um þig. Við seljum engar persónuupplýsingar (við söfnum engum). Við setjum ekki gervigreind á milli þín og netsins, sem ákveður hvað þú sérð. Við byggjum heldur enga rafmyntaeiginleika inn í vafrann okkar.
Við smíðum vafrann sem við viljum noa, berum virðingu fyrir notendum okkar og berjumst fyrir betri vef fyrir alla.
-
Get ég flutt inn gögnin mín frá öðrum vöfrum?
Já. Þú getur valið að flytja inn bókamerki, lykilorð, vafrasögu og formfyllingargögn frá Chrome, Firefox, Edge, Óperu, Brave og Safari. Þú getur líka, hvenær sem er, flutt inn HTML skrár.
-
Er Vivaldi prívat?
Já, algjörlega!
Friðhelgi er ekki bara eiginleiki í Vivaldi, það er grundvallarviðhorf. Engin persónugreining, enginn námugröftur eða önnur vitleysa. Með innbyggðum auglýsinga- og rekjaravörnum auk dulkóðunar enda á milli fyrir samstillt gögn.
Samstilltu gögnin þín? Dulkóðuð enda á milli.
Vafrið þitt? Verndað með innbyggðri rekjara- og auglýsingavörn.
Friðhelgin þín? Ávallt í heiðri höfð.
-
Af hverju vill Vivaldi ekki innleiða gervigreind?
Við höfum valið að fara manneskjulegri leiðina. Við lítum svo á að notkun netsins eigi að vera að frumkvæði notandans. Við viljum ekki setja gervigeindarvél á milli þín og netsins sem þá myndi stjóran því hvað þú sérð og hvað ekki. Við viljum frekar búa til ný öflug tól í vafrann þar sem þú ert við stjórnina.
-
Get ég notað Vivaldi á snjallsíma?
Já, Vivaldi er líka til fyrir Android og iOS tæki. Þar getur þú líka notið öflugra eiginleika eins og innbyggðs auglýsingavara, tveggja laga flipastiku, minnisblaða og þýðinga. Hægt er að sækja Vivaldi bæði á App Store og Play Store.
-
Er Vivaldi auðveldur í notkun þrátt fyrir alla eiginleikana?
Já, Vivaldi virkar vel beint úr kassanum og tilbúinn til notkunar strax eftir uppsetningu. Snilldin við Vivaldi er að þú ræður hvað þú eyðir miklum tíma í að aðlaga hann að þínum þörfum. Vivaldi er með fleiri stillingar en nokkur annar vafri og því meira sem þú kynnir þér þær því meira færðu út úr honum.
-
Virkar Vivaldi á öllum síðum eins og Chrome?
Vivaldi virkar á öllum síðum rétt eins og allir aðrir stórir vafrar.
Vivaldi m.v. samkeppnisaðilana
Hérna má sjá stöðu Vivaldi í samanburði við samkeppnisaðilana.
Síðast uppfært: Október 2026






