Vivaldi m.v. Safari
Það er greinilega himinn og haf á milli siðagilda þessara tveggja fyrirtækja. Vivaldi berst með kjafti og klóm fyrir betri vef á meðan Apple leitar sífellt nýrra leiða til að nýta markaðsráðandi stöðu sína gegn frelsi á netinu.
Vivaldi er í eigu starfsmanna, er ekki með neina utanaðkomadi fjárfesta, og er staðsett í Evrópu. Apple er einn af bandarísku tæknirisunum og þénar um 20 milljarða dollara á ári á samningi sínum við Google varðandi það að leitarvél Google sé sjálfgefin leitarvél í Safari.
Margir vefhönnuðir líta svo á að Safari sé hinn „nýi Internet Explorer 6“ vegna vafrabögga og hve hægt þau taka upp vefstaðla. Ef það er ekki nógu góð ástæða fyrir þig til að skipta, skulum við skoða nánar muninn á eiginleikum þessara tveggja vafra.
Afkastageta
Vivaldi er sérsníðanlegasti vafri í heimi! Af hverju skiptir það máli fyrir afkastagetu þína? Það er ekki flókið. Þú getur á einfaldan hátt aðlagað Vivaldi að þínu vinnuflæði.
Allir nota vafrann sinn til að koma hlutum í verk: við vinnu, nám, innkaup, rannsóknir eða einfaldlega til afþreyingar. Vivaldi er stútfullur af gagnlegum eiginleikum til að lágmarka truflanir og hjálpa þér að klára verkefnin á skilvirkan hátt.
Með flipastjórnunareiginleikum, óteljandi sérsniðnum flýtilyklum og öflugum innbyggðum tólum, geturðu afkastað meiru og skemmt þér konunglega í leiðinni.
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | ||
|---|---|---|
| Flipabunkar í tveimur línum | ||
| Flipastaflar | ||
| Óteljandi flipar í margskiptum skjá | ||
| Sérsníðanleg staðsetning flipastiku | ||
| Sérsníðanleg staðsetning veffangastiku | ||
| Regluleg endurhlöðun á flipum | ||
| Settu upp vefsíður sem borðtölvu öpp (PWA) | ||
| Sérsniðnir fjölvar | ||
| Sérsníðanlegar músabendingar | ||
| Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar | ||
| Pomodoro klukka | ||
| Tékklisti | ||
| Sérsniðin öpp og síður á hliðarstikunni í vafranum | ||
| Flipar lagðir í dvala handvirkt (sparnar minni) | ||
| Hvíldarhamur | ||
| Innbyggður ritill fyrir minnismiða | ||
| Innbyggður póstur | ||
| Innbyggt dagatal | ||
| Vinnusvæði |
Vivaldi leggur áherslu á flipastjórnun og afköst - með einstaka innbyggða eiginleika sem gerir það að verkum að hann sker sig úr fjöldanum.
Friðhelgi
Flestir vafrar halda því fram að þeir standi vörð um friðhelgi þína, en viðskiptamódel þeirra byggja oftast á persónugreiningum eða njósnum.
Við hjá Vivaldi höfnum þessum vinnubrögðum og teljum að það sem þú gerir í vafranum þínum sé þitt mál. Við útvegum tólin sem þú þarft þér til verndar lymskulegum njósnum tæknirisanna, eins og innbyggða auglýsinga- og rekjavörn með sérsniðnum listum, Proton VPN og samstillingu sem er dulkóðuð enda á milli. Þú ert við stjórnvölinn hjá Vivaldi!
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | ||
|---|---|---|
| Innbyggð auglýsingavörn | ||
| Vernd gegn rekjurum | ||
| Sérsniðnir lokunar listar | ||
| Örugg samstilling með dulkóðuðum lyklum | ||
| Engin rakning eða njósnir um notendur | ||
| Frítt ótakmrkað VPN | ||
| Evrópskur | ||
| Gögnin geymd í Evrópu |
Friðhelgi er sjálfgefin: Engin persónugreining, með innbyggðri rekjara- og auglýsingavörn og ókeypis VPN þjónustu frá Proton.
Innbyggðir eiginleikar
Markmið okkar hjá Vivaldi er að skaffa vafra sem er með allt sem þú þarft innbyggt. Mantran okkar er "vafri sem lagar sig að þér - þú þarft ekki að laga þig að honum", og að því að við erum öll með ólíkar þarfir, þýðir það að vafrinn okkar er stappfullur af öflugum eiginleikum og stillingum.
Ef það sem þig vantar er ekki þegar innbyggt í Vivaldi, geturðu sett upp viðbætur úr Chrome vefversluninni (þær virka líka frábærlega í Vivaldi), eða kíkt á spjallborðið okkar og beðið um nýjan eiginleika. Við elskum að fá endurgjöf frá notendum: það er þannig sem bætum okkur því við erum hvorki með hluthafa né fjárfesta sem þrýsta á okkur.
Vivaldi er með eiginleika sem þig langar í, og eiginleika sem þú vissir ekki að þig vantaði og gætir ekki lifað áns.
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | ||
|---|---|---|
| Tól til skjáskota í vafranum | ||
| Einka þýðingatól fyrir heilar síður | ||
| Sprettiglugga myndbönd á hvaða vefsíðu sem er | ||
| Sérsniðin þemu sem hægt er að deila | ||
| Breytanlegar tækjastikur | ||
| Fullkomin samhæfni við Chromium viðbætur | ||
| Sérsniðnar leitarvélar | ||
| Tól til þess að breyta útliti síðna | ||
| Leshamur | ||
| Innbyggður póstur | ||
| Innbyggt dagatal | ||
| Innbyggður lesari fyrir strauma | ||
| Myndræn saga með tölfræðiupplýsingum | ||
| Eiginleikar myndar | ||
| Slökkva/kveikja á hreyfimyndum | ||
| Slökkva/kveikja á niðurhali mynda | ||
| Laus við gervigreind | ||
| Fela viðmót sjálfkrafa | ||
| Borðtölvuviðmót á Android |
Póstur, dagatal, lesari fyrir strauma, minnismiðar og þýðingar - allt innbyggt, engar viðbætur nauðsynlegar.
Engin gervigreind
Ólíkt flestum af okkar samkeppnisaðilum, þá er Vivaldi alveg laus við gervigreindar-matreiðslu - engin samantektartól, engin spjallmenni. Þú ræður ferðinni. Við höfum ákveðið að hafa þetta manneskjulegt.
Við veljum manneskjur fram yfir skrum og viljum ekki eyðilggja ánægjuna sem felst í því að vafra. Því án eigin rannsóknarvinnu verður vefurinn ekki eins áhugaverður. Forvitnin missir súrefni og fjölbreytileiki vefsins deyr út.
Jón von Tetzchner - Forstjóri, Vivaldi Technologies
Vivaldi er vin í eyðimörkinni fyrir þá sem vilja uppgötva. Við munum halda áfram að byggja vafra fyrir forvitna, fyrir ofurnotendur, rannsakendur, og hvern þann sem vill flýta fyrir sér og einfalda hlutina.
Óteljandi flipar í margskiptum skjá
Flísalögn með flipum gerir þér kleift að skoða margar síður samtímis. Frábært bæði í leik og starfi - Kjörið þegar þarf að bera saman tilboð eða fylgjast með mörgum straumum í einu!
Flipabunkar á mörgum hæðum
Gott dæmi um einstaka flipastjórnun hjá okkur. Þú einfaldlegar dregur flipana þína og sleppir þeim til þess að skipuleggja þá í flipagrúppur sem við köllum bunka. Bunkarnir fá síðan nýtt nafn og litakóða. Bunkarnir þínir eru á aðal flipastikunni og lína tvö birtist þegar þú smellir á þá og sýnir flipana í þeirri grúppu.
Láttu flipana þína vinna fyrir þig
Þú kannast við tilfinninguna þegar þú vafrar, finnur áhugaverðan tengil, smellir á hann, eitt tekur við öðru og skyndilega eru ellefu flipar opnir á þennan eina þráð?
Ekki í Vivaldi. Fylgiflipinn okkar gerir þér kleift að opna hlekki í margskiptu viðmóti en upphaflega síðan helst til vinstri.
Hafðu stjórn á öllu með flýtiskipunum
Flýtiskipanir eru allsherjar leitar- og stjórnstöð í Vivaldi. Á augabragði getur þú leitað að flipum, bókamerkjum, sögu eða á netinu og keyrt vafrskipanir, allt á einum og sama stað.
Algengar spurningar
-
Styður Vivaldi viðbætur?
Já. Fullt af eiginleikum eru byggðir inn í Vivaldi og því þarftu lítið eða jafnvel ekkert af þeim viðbótum sem þú hefur sett upp hingað til. En ef þú þarft einhverjar þá sækir þú þær í Chrome Web Store. Þó að Vivaldi og Safari sæki viðbætur á mismunandi staði þá ættu alltaf að finnast viðbætur á Chrome Web Store sem eru sambærilegar þeim frá Safari.
-
Get ég flutt Safari lykilorð yfir í Vivaldi?
Já, þú getur flutt lykilorð úr Safari inn í Vivaldi. Vivaldi getur ekki lesið þau beint, svo fyrst þarf að flytja lykilorðin út úr Safari sem CSV skrá og svo flytja þá skrá inn í lykilorðakerfi Vivaldi.
-
Hvernig virka lykilorð á Vivaldi samanborið við Safari?
Vivaldi er með sína eigin, dulkóðuðu lykilorðaskrá frekar en að tengjast beint inn í lyklakeðju Apple eða tengiliðaappið þeirra. Þetta gerir Vivaldi kleift að samstilla lykilorðin milli uppsetninga Vivaldi á mismunandi tækjum.
-
Af hverju leyfir Safari mér ekki að hala niður Vivaldi vafrann?
Þetta er sennilega öryggisviðvörun frá macOS. Safari og macOS vara við áður en þú opnar forrit sem ekki er halað niður í gegnum App store. Vivaldi er undirritað og staðfest Mac forrit, svo þú getur leyft niðurhalið í gegnum Safari (eða í gegnum Kerfisstillingar > Friðhelgi og öryggi) og sett það upp eins og venjulega.
Berðu Vivaldi saman við aðra vafra
Síðast uppfært: Október 2026

