Vivaldi m.v. Firefox

Bæði Vivaldi og Firefox hafa tekið afgerandi afstöðu gegn tæknirisunum. En annar er staðsettur í San Francisco og að mestu fjármagnaður af Google, en hinn er með aðsetur í Ósló, í eigu starfsmanna og fjármagnaður af Jóni Von Tetzchner. Vivaldi er ekki með innbyggða gervigreind en Firefox er með gervigreindarverkfæri sjálfvirkt virkjuð.

Firefox reiðir sig mjög á að eiginleikar séu aðeins aðgengilegir ef notendur setja upp viðbætur, á meðan Vivaldi býður upp á mesta úrval innbyggðra eiginleika fyrir þægilega og örugga vafraupplifun. Kíkjum nánar á muninn á eiginleikum þessara tveggja vafra.

Hlaða niður Vivaldi
Vivaldi browser screenshot

Afkastageta

Vivaldi er sérsníðanlegasti vafri í heimi! Af hverju skiptir það máli fyrir afkastagetu þína? Það er ekki flókið. Þú getur á einfaldan hátt aðlagað Vivaldi að þínu vinnuflæði.

Allir nota vafrann sinn til að koma hlutum í verk: við vinnu, nám, innkaup, rannsóknir eða einfaldlega til afþreyingar. Vivaldi er stútfullur af gagnlegum eiginleikum til að lágmarka truflanir og hjálpa þér að klára verkefnin á skilvirkan hátt.

Með flipastjórnunareiginleikum, óteljandi sérsniðnum flýtilyklum og öflugum innbyggðum tólum, geturðu afkastað meiru og skemmt þér konunglega í leiðinni.

Fullur stuðningur Stuðningur að hluta til Enginn stuðningur

EiginleikarVivaldiFirefox
Flipabunkar í tveimur línumFullur stuðningurEnginn stuðningur
FlipastaflarFullur stuðningurFullur stuðningur
Óteljandi flipar í margskiptum skjáFullur stuðningurEnginn stuðningur
Sérsníðanleg staðsetning flipastikuFullur stuðningurStuðningur að hluta til
Sérsníðanleg staðsetning veffangastikuFullur stuðningurEnginn stuðningur
Regluleg endurhlöðun á flipumFullur stuðningurEnginn stuðningur
Settu upp vefsíður sem borðtölvu öpp (PWA)Fullur stuðningurStuðningur að hluta til
Sérsniðnir fjölvarFullur stuðningurEnginn stuðningur
Sérsníðanlegar músabendingarFullur stuðningurEnginn stuðningur
Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklarFullur stuðningurFullur stuðningur
Pomodoro klukkaFullur stuðningurEnginn stuðningur
TékklistiFullur stuðningurStuðningur að hluta til
Sérsniðin öpp og síður á hliðarstikunni í vafranumFullur stuðningurStuðningur að hluta til
Flipar lagðir í dvala handvirkt (sparnar minni)Fullur stuðningurFullur stuðningur
HvíldarhamurFullur stuðningurEnginn stuðningur
Innbyggður ritill fyrir minnismiðaFullur stuðningurEnginn stuðningur
Innbyggður pósturFullur stuðningurEnginn stuðningur
Innbyggt dagatalFullur stuðningurEnginn stuðningur
VinnusvæðiFullur stuðningurEnginn stuðningur

Vivaldi leggur áherslu á flipastjórnun og afköst - með einstaka innbyggða eiginleika sem gerir það að verkum að hann sker sig úr fjöldanum.

Hlaða niður Vivaldi

Friðhelgi

Flestir vafrar halda því fram að þeir standi vörð um friðhelgi þína, en viðskiptamódel þeirra byggja oftast á persónugreiningum eða njósnum.

Við hjá Vivaldi höfnum þessum vinnubrögðum og teljum að það sem þú gerir í vafranum þínum sé þitt mál. Við útvegum tólin sem þú þarft þér til verndar lymskulegum njósnum tæknirisanna, eins og innbyggða auglýsinga- og rekjavörn með sérsniðnum listum, Proton VPN og samstillingu sem er dulkóðuð enda á milli. Þú ert við stjórnvölinn hjá Vivaldi!

Fullur stuðningur Stuðningur að hluta til Enginn stuðningur

EiginleikarVivaldiFirefox
Innbyggð auglýsingavörnFullur stuðningurEnginn stuðningur
Vernd gegn rekjurumFullur stuðningurFullur stuðningur
Sérsniðnir lokunar listarFullur stuðningurStuðningur að hluta til
Örugg samstilling með dulkóðuðum lyklumFullur stuðningurFullur stuðningur
Engin rakning eða njósnir um notendurFullur stuðningurEnginn stuðningur
Frítt ótakmrkað VPNFullur stuðningurStuðningur að hluta til
EvrópskurFullur stuðningurEnginn stuðningur
Gögnin geymd í EvrópuFullur stuðningurEnginn stuðningur

Friðhelgi er sjálfgefin: Engin persónugreining, með innbyggðri rekjara- og auglýsingavörn og ókeypis VPN þjónustu frá Proton.

Hlaða niður Vivaldi

Innbyggðir eiginleikar

Markmið okkar hjá Vivaldi er að skaffa vafra sem er með allt sem þú þarft innbyggt. Mantran okkar er "vafri sem lagar sig að þér - þú þarft ekki að laga þig að honum", og að því að við erum öll með ólíkar þarfir, þýðir það að vafrinn okkar er stappfullur af öflugum eiginleikum og stillingum.

Ef það sem þig vantar er ekki þegar innbyggt í Vivaldi, geturðu sett upp viðbætur úr Chrome vefversluninni (þær virka líka frábærlega í Vivaldi), eða kíkt á spjallborðið okkar og beðið um nýjan eiginleika. Við elskum að fá endurgjöf frá notendum: það er þannig sem bætum okkur því við erum hvorki með hluthafa né fjárfesta sem þrýsta á okkur.

Vivaldi er með eiginleika sem þig langar í, og eiginleika sem þú vissir ekki að þig vantaði og gætir ekki lifað áns.

Fullur stuðningur Stuðningur að hluta til Enginn stuðningur

EiginleikarVivaldiFirefox
Tól til skjáskota í vafranumFullur stuðningurFullur stuðningur
Einka þýðingatól fyrir heilar síðurFullur stuðningurFullur stuðningur
Sprettiglugga myndbönd á hvaða vefsíðu sem erFullur stuðningurFullur stuðningur
Sérsniðin þemu sem hægt er að deilaFullur stuðningurStuðningur að hluta til
Breytanlegar tækjastikurFullur stuðningurFullur stuðningur
Fullkomin samhæfni við Chromium viðbæturFullur stuðningurEnginn stuðningur
Sérsniðnar leitarvélarFullur stuðningurFullur stuðningur
Tól til þess að breyta útliti síðnaFullur stuðningurEnginn stuðningur
LeshamurFullur stuðningurFullur stuðningur
Innbyggður pósturFullur stuðningurEnginn stuðningur
Innbyggt dagatalFullur stuðningurEnginn stuðningur
Innbyggður lesari fyrir straumaFullur stuðningurEnginn stuðningur
Myndræn saga með tölfræðiupplýsingumFullur stuðningurEnginn stuðningur
Eiginleikar myndarFullur stuðningurStuðningur að hluta til
Slökkva/kveikja á hreyfimyndumFullur stuðningurStuðningur að hluta til
Slökkva/kveikja á niðurhali myndaFullur stuðningurEnginn stuðningur
Laus við gervigreindFullur stuðningurEnginn stuðningur
Fela viðmót sjálfkrafaFullur stuðningurEnginn stuðningur
Borðtölvuviðmót á AndroidFullur stuðningurFullur stuðningur

Póstur, dagatal, lesari fyrir strauma, minnismiðar og þýðingar - allt innbyggt, engar viðbætur nauðsynlegar.

Hlaða niður Vivaldi

Engin gervigreind

Ólíkt flestum af okkar samkeppnisaðilum, þá er Vivaldi alveg laus við gervigreindar-matreiðslu - engin samantektartól, engin spjallmenni. Þú ræður ferðinni. Við höfum ákveðið að hafa þetta manneskjulegt.

Við veljum manneskjur fram yfir skrum og viljum ekki eyðilggja ánægjuna sem felst í því að vafra. Því án eigin rannsóknarvinnu verður vefurinn ekki eins áhugaverður. Forvitnin missir súrefni og fjölbreytileiki vefsins deyr út.

Jón von Tetzchner - Forstjóri, Vivaldi Technologies

Vivaldi er vin í eyðimörkinni fyrir þá sem vilja uppgötva. Við munum halda áfram að byggja vafra fyrir forvitna, fyrir ofurnotendur, rannsakendur, og hvern þann sem vill flýta fyrir sér og einfalda hlutina.

Óteljandi flipar í margskiptum skjá

Flísalögn með flipum gerir þér kleift að skoða margar síður samtímis. Frábært bæði í leik og starfi - Kjörið þegar þarf að bera saman tilboð eða fylgjast með mörgum straumum í einu!

Flipabunkar á mörgum hæðum

Gott dæmi um einstaka flipastjórnun hjá okkur. Þú einfaldlegar dregur flipana þína og sleppir þeim til þess að skipuleggja þá í flipagrúppur sem við köllum bunka. Bunkarnir fá síðan nýtt nafn og litakóða. Bunkarnir þínir eru á aðal flipastikunni og lína tvö birtist þegar þú smellir á þá og sýnir flipana í þeirri grúppu.

Láttu flipana þína vinna fyrir þig

Þú kannast við tilfinninguna þegar þú vafrar, finnur áhugaverðan tengil, smellir á hann, eitt tekur við öðru og skyndilega eru ellefu flipar opnir á þennan eina þráð?

Ekki í Vivaldi. Fylgiflipinn okkar gerir þér kleift að opna hlekki í margskiptu viðmóti en upphaflega síðan helst til vinstri.

Hafðu stjórn á öllu með flýtiskipunum

Flýtiskipanir eru allsherjar leitar- og stjórnstöð í Vivaldi. Á augabragði getur þú leitað að flipum, bókamerkjum, sögu eða á netinu og keyrt vafrskipanir, allt á einum og sama stað.

Síðast uppfært: Október 2026