Fyrirtækjalausnir Vivaldi

Sjálfstæður evrópskur vafri sem vinnur fyrir þig. Ekki tæknirisa.

Innleiddu og stýrðu Vivaldi í öllu fyrirtækinu. Engin rakning - Engin persónugreining - Engin gervigreind - Ekkert leyfisgjald.

Windows · macOS · Linux

Vinsamlegast fylltu út formið til þess að hala niður Vivaldi fyrirtækjalausnir.

Skilmálar
Forbes “The best browser”
WIRED “Web's best browser”
TechRadar “Fantastic for power users”
Lifehacker “Packed with helpful, innovative features”

Við hverju máttu búast af Vivaldi?

Powerful

Vivaldi er hlaðinn öllum þeim eiginleikum og tólum sem gera starfsmönnum þínum kleift að afkasta meiru.

Personal

Vivaldi er sérsníðanlegasti vafri í heimi. Þú getur á einfaldan hátt aðlagað hann að þínum þörfum.

Private

Engin persónugreining, engin gagnagreining, engin vitleysa. Gögnin þín eru ýmist geymd á þinni eigin tölvu eða eru dulkóðuð.

Allt sem þú þarfnast.
Ekkert sem þú baðst ekki um.

Fyrirtækjalausnir Vivaldi
Leyfisgjöld Engin
Reglustjórnun Já
Útgáfustýring og uppfærslur Já
Sérsniðinn vafri fyrir stofnanir og fyrirtæki Já
Miðlæg stjórnun með þínum eigin tólum Já
Windows, MacOS, Linux Já
Öryggisuppfærslur samdægurs Já
Innbyggð auglýsinga- og rekjaravörn Já
Rakning eða persónugreining á þínu fólki Aldrei
Spjallmenni eða aðstoðarmenn í vafranum Engin
Gögn notuð eru til að þjálfa gervigreindarlíkön Aldrei
Sérhæfður stuðningur Sérsniðin

Vafrinn sem vinnur fyrir þig.
Ekki tæknirisana.

Innbyggð persónuvernd

Við fylgjumst ekki með því sem fólk gerir á netinu og persónugreinum það ekki. Rekstur okkar byggir ekki á gagnasöfnun og persónugreiningu, þannig að við höfum enga ástæðu til að fylgjast með.

Fólk, en ekki gervigreind, vafrar á netinu

Engum spjallmennum eða gervigreindarfulltrúum er þröngvað inn í vafrann. Ekkert stendur á milli þín og upplýsinganna sem þú leitar að.

Sjálfstæður og evrópskur

Vivaldi er smíðaður á Íslandi og í Noregi af fyrirtæki í eigu starfsmanna, án aðkomu utanaðkomandi fjárfesta. Netþjónar okkar eru staðsettir á Íslandi og knúnir sjálfbærri jarðvarmaorku.

Vafri sem aðlagar sig að þínum þörfum en ekki öfugt

Vafrinn er það verkfæri sem allir í fyrirtækinu þínu nota, allan daginn, alla daga. Hvers vegna ættu þeir þá að þurfa að laga sig að honum? Vivaldi er hægt að aðlaga að vinnulagi fólks, ekki öfugt. Hvert sem verkefnið er, þá er allt sem þarf innan seilingar, uppsett eins og fólk vill hafa það og þar sem það vill hafa það. Vivaldi er stútfullur af öflugum eiginleikum sem hjálpa fólki að vafra betur og hraðar.

Flísalögn með flipum

Opnar flipa á margskiptum skjá svo hægt er að skoða margar síður hlið við hlið.

Flipabunkar

Flokkaðu flipana þína í flipabunka á tveggjalaga flipastikum. Bunkar eru frábær leið til þess að hafa skipulagið í lagi þegar þú ert með mjög marga flipa opna.

Vefspjöld

Bættu hvaða síðu sem er á hliðarstikuna. Frábær staðsetning fyrir spjallþræði og samfélagsmiðla.

Vinnusvæði

Raðaðu flipum og flipabunkum í flokka og svissaðu auðveldlega á milli sýna.

Minnisblöð

Skrifaðu minnismiða á hliðarstikunni um leið og þú vafrar og samstilltu þá á öruggan hátt yfir á önnur tæki.

Hraðval

Farðu fljótt og örugglega á uppáhalds síðurnar þínar, beint af upphafssíðunni. Þú getur sérsniðið sjálfgefin bókamerki eða bætt við sérsniðnum flýtilyklum og möppum.

Mælaborð

Stjórnborðið þitt. Pósturinn, dagatalið, minnismiðarnir, verkefnin og meira að segja lesari fyrir strauma. Allt er þetta nú á einum stað. Þú getur meira að segja bætt við hvaða vefsíðu sem er sem græju.

Auglýsinga- og rekjaravörn

Lokaðu á ágengar auglýsingar og verndaðu þig fyrir lúmskum rekjurum. Þú átt skilið að vafra hratt og prívat.

Samstilling

Samstilltu vafragögnin þín á öruggan hátt á milli margra tækja.

Notanda prófíll

Deildu sömu uppsetningunni á Vivaldi með öðrum notendum tölvunnar og slepptu þar með við að viðhalda mörgum uppsetningum.

Setustjórnun

Vistaðu opna flipa sem setu og sæktu þá síðar.

Breytanlegar tækjastikur

Færðu og fjarlægðu hvaða hnapp sem er á hvaða stiku sem er.

Sami vafri, sami dagur.

Notendur fyrirtækjalausnar Vivaldi fá sömu uppfærslur og aðrir, og á sama tíma, ólíkt sumum öðrum fyrirtækjalausnum sem eru að hægara róli.

Upplýsingar

Jón von Tetzchner
Forstjóri, Vivaldi Technologies

Baráttan fyrir betri vef

Við erum að byggja upp valkost við tæknirisana og leggjum áherslu á að setja fólk í fyrsta sæti. Við njósnum ekki. Engir fjárfestar sem vilja gámast í gögnin þín. Við berum hag þinn í brjósti. Sem sjálfstætt evrópskt fyrirtæki lítum við ekki á friðhelgi einkalífsins sem bara eiginleika. Fyrir okkur er það lífsviðhorf.

Vefurinn þarf að vera frjáls og opinn fyrir alla. Með því að nota Vivaldi þá ertu ekki bara að velja vafra, þú ert að taka þátt í baráttunni um betri vef.

Lesa meira

Algengar spurningar

  • Hvaða sniðmát fyrir stefnu og stýrikerfi eru studd?

    Við dreifum sniðmátum fyrir ADMX uppsetningu á Windows sem hægt er að nota með Active Directory, Microsoft Intune, FleetDM, og samskonar MDM (Mobile Device Management) lausnum. Við dreifum líka sniðmáti fyrir uppsetningu með JSON á Linux, og fyrir uppsetningu með PLIST á macOS.

  • Hvað munu stillanlegar reglur dekka?

    Most Chromium policies that are relevant to Vivaldi. Some key Vivaldi settings are turned into policies. There is centralized configuration of Extensions, Bookmarks, Search Engines, the Start Page, Sync, VPN, privacy settings and other browser features through policy management.

  • Er stuðningur við MSI eða samskonar kerfislæga pakka sem notendur geta notað sjálfir til uppsetninga?

    Við erum að setja upp sjálfstæða MSIX drefingu fyrir stýrðar uppsetningar og uppfærslur, en sú uppsetning er fyrir venjulega útgáfu af Vivaldi. Eini munurinn er í sjálfvirku uppfærslunum: MSIX notar sinn eigin mekanisma sem er tvinnaður inn í Windows uppfærslu.

  • Er í hyggju að setja upp miðstýrt stjórnunarkerfi, og ef svo, verður það í skýi eða aðgengilegt til notkunar við uppsetningu á staðnum?

    Enn eru engin plön um að þróa okkar eigið miðstýrða stjórnunarkerfi. Við viljum heldur ekki velja þannig kerfi frá öðrum sem okkar kerfi því þau logga vafrasögu, og það er andstætt persónuverndastefnu okkar. Við reiðum okkur því á að þeir sem stýra fyrirtækjalausninni hjá hverju fyrirtæki fyrir sig noti MDM lausn að eigin vali, eins og t.d. Microsoft Intune eða FleetDM.

  • Hver eru notkunar- og viðhaldsgjöldin miðað við fjölda notenda eða tækja?

    Við rukkum engin notkunargjöld. En við erum með þrepaskipt viðhaldsgjöld, frá því að vera ókeypis (rekið af samfélagi notenda) upp í mismunandi verðstig (standard, premium og enterprise). Það er ekkert lágmark fjölda notenda eða tækja, en verðið er tengt við fjölda notenda.