Vivaldi m.v. Chrome
Það er greinilega himinn og haf á milli siðagilda þessara fyrirtækja. Meðan annað þeirra leitast við að safna öllum persónulegum upplýsingum til að ná heimsyfirráðum, er hitt bara himinlifandi með "vöfflur með brúnosti á föstudögum" og berst með kjafti og klóm fyrir betri vef. Við vitum ekki til þess að brúnostur sér í boði í Googleplex.
Vivaldi er í eigu starfsmanna, hefur enga utanaðkomandi fjárfesta. Höfuðstöðvarnar eru í Evrópu. Google er eitt af tæknirisaveldunum (Big Tech) og aflar mestan hluta tekna sinna með því að selja persónuupplýsingarnar þínar. Vivaldi notast ekki við gervigreind, njósnar ekki um þig né selur gögnin þín, og gerir þér kleift að sérsníða hlutina nákvæmlega eins og þér hentar. Ólíkt Chrome.
Þetta eru aðeins nokkur af helstu atriðunum sem greina fyrirtækin að. Við skulum skoða nánar muninn á eiginleikum þessara tveggja vafra.
Afkastageta
Vivaldi er sérsníðanlegasti vafri í heimi! Af hverju skiptir það máli fyrir afkastagetu þína? Það er ekki flókið. Þú getur á einfaldan hátt aðlagað Vivaldi að þínu vinnuflæði.
Allir nota vafrann sinn til að koma hlutum í verk: við vinnu, nám, innkaup, rannsóknir eða einfaldlega til afþreyingar. Vivaldi er stútfullur af gagnlegum eiginleikum til að lágmarka truflanir og hjálpa þér að klára verkefnin á skilvirkan hátt.
Með flipastjórnunareiginleikum, óteljandi sérsniðnum flýtilyklum og öflugum innbyggðum tólum, geturðu afkastað meiru og skemmt þér konunglega í leiðinni.
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | ||
|---|---|---|
| Flipabunkar í tveimur línum | ||
| Flipastaflar | ||
| Óteljandi flipar í margskiptum skjá | ||
| Sérsníðanleg staðsetning flipastiku | ||
| Sérsníðanleg staðsetning veffangastiku | ||
| Regluleg endurhlöðun á flipum | ||
| Settu upp vefsíður sem borðtölvu öpp (PWA) | ||
| Sérsniðnir fjölvar | ||
| Sérsníðanlegar músabendingar | ||
| Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar | ||
| Pomodoro klukka | ||
| Tékklisti | ||
| Sérsniðin öpp og síður á hliðarstikunni í vafranum | ||
| Flipar lagðir í dvala handvirkt (sparnar minni) | ||
| Hvíldarhamur | ||
| Innbyggður ritill fyrir minnismiða | ||
| Innbyggður póstur | ||
| Innbyggt dagatal | ||
| Vinnusvæði |
Vivaldi leggur áherslu á flipastjórnun og afköst - með einstaka innbyggða eiginleika sem gerir það að verkum að hann sker sig úr fjöldanum.
Friðhelgi
Flestir vafrar halda því fram að þeir standi vörð um friðhelgi þína, en viðskiptamódel þeirra byggja oftast á persónugreiningum eða njósnum.
Við hjá Vivaldi höfnum þessum vinnubrögðum og teljum að það sem þú gerir í vafranum þínum sé þitt mál. Við útvegum tólin sem þú þarft þér til verndar lymskulegum njósnum tæknirisanna, eins og innbyggða auglýsinga- og rekjavörn með sérsniðnum listum, Proton VPN og samstillingu sem er dulkóðuð enda á milli. Þú ert við stjórnvölinn hjá Vivaldi!
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | ||
|---|---|---|
| Innbyggð auglýsingavörn | ||
| Vernd gegn rekjurum | ||
| Sérsniðnir lokunar listar | ||
| Örugg samstilling með dulkóðuðum lyklum | ||
| Engin rakning eða njósnir um notendur | ||
| Frítt ótakmrkað VPN | ||
| Evrópskur | ||
| Gögnin geymd í Evrópu |
Friðhelgi er sjálfgefin: Engin persónugreining, með innbyggðri rekjara- og auglýsingavörn og ókeypis VPN þjónustu frá Proton.
Innbyggðir eiginleikar
Markmið okkar hjá Vivaldi er að skaffa vafra sem er með allt sem þú þarft innbyggt. Mantran okkar er "vafri sem lagar sig að þér - þú þarft ekki að laga þig að honum", og að því að við erum öll með ólíkar þarfir, þýðir það að vafrinn okkar er stappfullur af öflugum eiginleikum og stillingum.
Ef það sem þig vantar er ekki þegar innbyggt í Vivaldi, geturðu sett upp viðbætur úr Chrome vefversluninni (þær virka líka frábærlega í Vivaldi), eða kíkt á spjallborðið okkar og beðið um nýjan eiginleika. Við elskum að fá endurgjöf frá notendum: það er þannig sem bætum okkur því við erum hvorki með hluthafa né fjárfesta sem þrýsta á okkur.
Vivaldi er með eiginleika sem þig langar í, og eiginleika sem þú vissir ekki að þig vantaði og gætir ekki lifað áns.
Fullur stuðningur
Stuðningur að hluta til
Enginn stuðningur
| Eiginleikar | ||
|---|---|---|
| Tól til skjáskota í vafranum | ||
| Einka þýðingatól fyrir heilar síður | ||
| Sprettiglugga myndbönd á hvaða vefsíðu sem er | ||
| Sérsniðin þemu sem hægt er að deila | ||
| Breytanlegar tækjastikur | ||
| Fullkomin samhæfni við Chromium viðbætur | ||
| Sérsniðnar leitarvélar | ||
| Tól til þess að breyta útliti síðna | ||
| Leshamur | ||
| Innbyggður póstur | ||
| Innbyggt dagatal | ||
| Innbyggður lesari fyrir strauma | ||
| Myndræn saga með tölfræðiupplýsingum | ||
| Eiginleikar myndar | ||
| Slökkva/kveikja á hreyfimyndum | ||
| Slökkva/kveikja á niðurhali mynda | ||
| Laus við gervigreind | ||
| Fela viðmót sjálfkrafa | ||
| Borðtölvuviðmót á Android |
Póstur, dagatal, lesari fyrir strauma, minnismiðar og þýðingar - allt innbyggt, engar viðbætur nauðsynlegar.
Engin gervigreind
Ólíkt flestum af okkar samkeppnisaðilum, þá er Vivaldi alveg laus við gervigreindar-matreiðslu - engin samantektartól, engin spjallmenni. Þú ræður ferðinni. Við höfum ákveðið að hafa þetta manneskjulegt.
Við veljum manneskjur fram yfir skrum og viljum ekki eyðilggja ánægjuna sem felst í því að vafra. Því án eigin rannsóknarvinnu verður vefurinn ekki eins áhugaverður. Forvitnin missir súrefni og fjölbreytileiki vefsins deyr út.
Jón von Tetzchner - Forstjóri, Vivaldi Technologies
Vivaldi er vin í eyðimörkinni fyrir þá sem vilja uppgötva. Við munum halda áfram að byggja vafra fyrir forvitna, fyrir ofurnotendur, rannsakendur, og hvern þann sem vill flýta fyrir sér og einfalda hlutina.
Óteljandi flipar í margskiptum skjá
Flísalögn með flipum gerir þér kleift að skoða margar síður samtímis. Frábært bæði í leik og starfi - Kjörið þegar þarf að bera saman tilboð eða fylgjast með mörgum straumum í einu!
Flipabunkar á mörgum hæðum
Gott dæmi um einstaka flipastjórnun hjá okkur. Þú einfaldlegar dregur flipana þína og sleppir þeim til þess að skipuleggja þá í flipagrúppur sem við köllum bunka. Bunkarnir fá síðan nýtt nafn og litakóða. Bunkarnir þínir eru á aðal flipastikunni og lína tvö birtist þegar þú smellir á þá og sýnir flipana í þeirri grúppu.
Láttu flipana þína vinna fyrir þig
Þú kannast við tilfinninguna þegar þú vafrar, finnur áhugaverðan tengil, smellir á hann, eitt tekur við öðru og skyndilega eru ellefu flipar opnir á þennan eina þráð?
Ekki í Vivaldi. Fylgiflipinn okkar gerir þér kleift að opna hlekki í margskiptu viðmóti en upphaflega síðan helst til vinstri.
Hafðu stjórn á öllu með flýtiskipunum
Flýtiskipanir eru allsherjar leitar- og stjórnstöð í Vivaldi. Á augabragði getur þú leitað að flipum, bókamerkjum, sögu eða á netinu og keyrt vafrskipanir, allt á einum og sama stað.
Algengar spurningar
-
Get ég notað Chrome viðbæturnar mínar í Vivaldi?
Já. Vivaldi er byggður á Chromium, þannig að þú getur auðveldlega sett upp uppáhalds viðbæturnar þínar úr Chrome netversluninni um leið og þú skiptir um vafra, án þess að lenda í samhæfingarvandræðum.
-
Er hægt að samstilla Vivaldi á mörg tæki?
Þó að báðir vafrar samstillir bókamerki, lykilorð og stillingar á milli tækja, þá er dulkóðunin ólík. Vivaldi getur ekki nálgast gögnin þín og mun biðja þig um að velja þinn eigin dulkóðunarlykil fyrir örugga samstillingu, þannig að gögnin þín verða ólæsileg öllum öðrum en þér. Chrome býður líka upp á dulkóðunarmöguleika, en það er sjálfgefið að slökkt er á honum. Þannig að ef þú kveikir ekki á honum getur Google lesið samstilltu gögnin þín.
-
Er Vivaldi betri en Chrome í að sýsla með marga flipa?
Já, ef þú ert oft með tugi flipa opna. Vivaldi býður upp á tveggja hæða flipastafla, ótakmarkaða flísalögn flipa og vinnusvæði, á meðan Chrome býður aðeins upp á flata flipahópa.
-
Þarf ég viðbætur fyrir auglýsingavörn?
Nei, Vivaldi er með innbyggða auglýsingavörn sem studd er af sérsniðum varnarlistum. Við erum stöðugt að endurbæta vörnina og aðlaga að breytingum á vefnum.
-
Virkar Vivaldi með Google þjónustum eins og pósti og skjölum?
Chrome og Vivaldi byggja á sama grunni, svo þú munt ekki lenda í neinum samhæfingarvandræðum. Vivaldi getur líka lokað á rekjara og persónugreiningar á Google síðum, þannig að þú færð meiri friðhelgi án þess að missa aðgang að uppáhalds tækjunum þínum.
-
Er Vivaldi með Gemini eða gervigreindareiginleika eins og Chrome?
Nei. Þrátt fyrir þrýsting frá tæknigeiranum höfum við hafnað því frá upphafi að bæta við gervigreind. Við höfum valið manneskjulega nálgun og munum ekki bjóða upp á nein spjallmenni eða gervigreindarverkfæri. Hins vegar er Chrome með Gemini innbyggt sem einn af sínum kjarnaeiginleikum.
Berðu Vivaldi saman við aðra vafra
Síðast uppfært: Október 2026

