Svona er best að aðlaga Vivaldi vafrann á Linux
Vivaldi vafrinn passar vel inn í mismunandi Linux útgáfur. Láttu þínum viðskiptavinum líða vel með því að bæta Vivaldi inn í þitt Linux.
Hlaða niður Vivaldi Talaðu við forritarana hjá VivaldiÞessi vafri á heima í þinni Linux útgáfu
Vivaldi er ekki eins og aðrir vafrar. Hann hafnar hugbúnaði tæknirisanna sem gerir ráð fyrir að sama stærð henti öllum, heldur setur notandann í fyrsta sæti.
Allt er sérsníðanlegt í Vivaldi og vafrinn er smíðaður með það að leiðarljósi að notandinn eigi rétt á friðhelgi og öryggi - rétt eins og í Linux.
Vivaldi vafrinn er hannaður frá grunni fyrir Linux. Það var ekki gert eftirá. Það er einfalt að nota Vivaldi í þinni uppáhalds Linux útgáfu. Þannig getur þú notið allra hinna einstæðu eiginleika í einum aðgengilegum pakka.
Tvær leiðir til að þátta Vivaldi inn
Fyrir últra sérsníðanlegt vafur má þátta Vivaldi inn í þína Linux útgáfu á tvo vegu: gera hann að vafra stýrikerfisins eða að vafra glugga-umhverfisins.
Láttu Vivaldi sjá um allt vafur á tölvunni þinni
Með þessum valmöguleika getur þú gert Vivaldi að alhliða vafra fyrir alla reikninga. Það mun vafalaust veita nýjum notendum Linux útgáfa kunnuglega upplifun, en samt með öllum eiginleikum Vivaldi vafrans.
Þátta inn í glugga-umhverfið
Þessi valmöguleiki hentar vel ef þú ert að vinna með Linux útgáfu sem notar mörg glugga-umhverfi. Hér getur þú sésniðið Vivaldi fyrir samþáttun í hvert glugga-umhverfi (DE), og þar með boðið upp á sveigjanleika samhliða því að hafa heildstæða upplifun á þinni Linux útgáfu.
Sérsníðum Vivaldi fyrir Linux útgáfuna þína
Hvort sem þú ert Linux stjórnandi eða venjulegur Linux notandi, þá hefur Vivaldi allt sem þú þarft til þess að sérsníða vafrann að þínum þörfum.
Sérsniðin þemu
Byrjaðu á því að sérsníða sjálfgefið vafraþema. þetta er frábær leið til þess að láta Vivaldi líta út fyrir að tilheyra Linux útgáfunni þinni (þannig verður hann í sama stíl og Linux útgáfan þín).
Hvort sem þú ert að leita að leið til þess að koma litaspjaldinu þínu yfir á Vivaldi eða bæta við litum sem tóna við núverandi útlit, þá erum við með lausnina.
Sérsniðnar leitarvélar
Næst getur þú bætt við sérsniðnum leitarvélum í Vivaldi og ákveðið hver þeirra verður sjálfgefin fyrir Linux notendurna þína.
Til dæmis, ef þú vilt hafa DuckDuckGo sem sjálfgefna leitarvél, þá getur þú gert það með þessari aðferð.
Sérsniðin bókamerki
Að lokum, þá getur þú bætt við sérsniðnum flýtileiðum eða bókamerkjum svo notendur geti auðveldlega nálgast þær síður sem eru mikilvægar fyrir þitt Linux.
Ef safn bókamerkja var sérstaklega búið til fyrir Linux útgáfuna þína, er hægt að nálgast þau á upphafssíðunni og í öllum eldri bókamerkjamöppum.
Elskaður af öllum, allt frá Linux stjórnendum til almennra Linux notenda
In our repos, Manjaro always provides the very latest version of Vivaldi, and thanks to direct developer contact we are now also able to include matching default themes for our editions.
Co-CEO of Manjaro GmbH & Co. KG, Bernhard Landauer
Replying to @jonsvt and @vivaldibrowser
Keep up the great work. As a Linux user in a Microsoft heavy technology company, I use Vivaldi a LOT for Teams, Outlook Email & Calendar, and it all just works so much better than it did in Firefox.
@vivaldibrowser I am surprised to find your in-browser email client so much better than the #Linux email clients I have tested so far, specially the conversation view 🙌 and the quick commands makes is such an ease! you guys nailed it!
Replying to @ManjaroLinux
For me @vivaldibrowser is my first stop whenever I install any distro (mostly Manjaro). It's private, has tons of customizations options, you can modify it as you feel, and looks beautiful in both Gnome & KDE.
Replying to @vivaldibrowser
Good achievement !
Someone on a known #Linux project said:
Best way to survive Firefox!
sudo eopkg install vivaldi-stable
sudo eopkg install vivaldi-snapshot
😉😉😉
The team at @vivaldibrowser are always innovating and improving. If you haven't tried their browser yet, you are definitely missing out.
Replying to @vivaldibrowser
I love Vivaldi its my go to browser on Linux most of my work is done in the browser I even code using #SapWebIde so the browser is my most important app choice #IChooseVivaldi
Af hverju Vivaldi er fullkominn fyrir Linux
Mjög sérsníðanlegur
Vivaldi er vafrinn sem leyfir þér að búa til þitt eigið vinnuflæði sem algjörlega þitt, með sérsníðanlegum flýtilyklum, bendingum og valmyndum. Breyttu stöðu, stærð og birtingu á viðmóti vafrans til þess að hann virki nákvæmlega eins og þú vilt.
Innbyggðir eiginleikar
Linux notendur eru skrýtnar skrúfur, en við getum þó sammælst um eitt: Frumlegir og öðruvísi eiginleikar skipta máli. Þess vegna er Vivaldi vafrinn hlaðinn eiginleikum sem höfða til Linux notenda og gerir vafrann fýsilegann fyrir alla þá sem vilja stjórna sjálfir vafra upplifun sinni.
ARM stuðningur
Vivaldi vill gera öllum Linux notendum jafn hátt undir höfði og tryggja að við öll getum nýtt okkur allt það nýjasta í vafranum. Við erum því stolt af því að vera einn af fáum vöfrum sem er í boði fyrir Linux á ARM örgjörvum. Pakkarnir eru til bæði á DEB og RPM formi og því hægt að setja upp á hvaða Linxu útgáfu sem er.
Friðhelgi í fyrirrúmi
Vivaldi er smíðaður með friðhelgi og öryggi að leiðarljósi. Okkar skoðun er sú að ónauðsynleg gagnasöfnun sé hættuleg, þannig að við rekjum ekki ferðir þínar í netheimum. Þess í stað leggjum við áherslu á að smíða vafra þar sem þú ert við stjórn!
Allt frá "ein stærð fyrir alla" til þess að notandi getur sérsniðið næstum allt
Við trúum af öllu hjarta á valfrelsi, þess vegna smíðuðum við Linux vafra sem höfðar til allra. Allt frá þeim sem vilja hefðbundna vafraupplifun með kunnuglegu viðmóti, til þeirra sem kjósa eitthvað nýstárlegt og einstakt.
Jon Stephenson von Tetzchner, Vivaldi CEO.
Þetta eru gildin okkar
Að halda góðu sambandi við samfélag okkar er nauðsynlegt til að halda Vivaldi-andanum lifandi. Svo ekki sé minnst á að byggja besta mögulega vafrann sem kostur er á. Við nýtum líka vettvang okkar til að deila jákvæðri þróun eða til að tala um skaðleg vinnubrögð sem gætu sett þig - og samfélagið í heild - í hættu.
Hver er okkar skoðun á rafmyntum?
Ef skyggnst er bakvið æðið sem er í gangi má sjá að rafmyntir hafa alvarlegar afleiðingar fyrir fólk, samfélag, og umhverfið í heild sinni.
Finnst þér stundum eins og fylgst sé með þér?
Það er orðið tímabært að loka á persónumiðaðar auglýsingar.
Algengar spurningar
-
Þarf ég að skrifa undir sérstakt samkomulag við Vivaldi áður en ég set hann upp?
Þú þarft ekki að gera sérstakan samning við Vivaldi þegar þú setur upp vafrann, Vivaldi er ókeypis hugbúnaður, þannig að ef uppsetningin þín er opin og án lagalegra takmarkana, þarftu ekki samning af neinum toga.
-
Er einhver leyfiskostnaður?
Vivaldi er ókeypis hugbúnaður þó hann sé ekki skráður sem "ókeypis, opinn hugbúnaður". Og því þarft þú ekki að hafa áhyggjur af kostnaði vegna leyfa eða öðrum kostnaði þegar þú setur upp Vivaldi.
-
Þarf ég að láta Vivaldi vita áður en ég set vafrann upp og þarf ég leyfi til þess?
Já, við mælum eindregið með því að þú látir okkur vita hvort og hvenær þú ætlar að setja vafrann upp á Linux útgáfunni þinni eða á Linux tæki. Við getum ekki krafist þess, en teljum æskilegt að þú biðjir um leyfi áður en þú hefst handa.