Innbyggð auglýsinga- og rekjaravörn
Við tökum ekki þátt í einokunarstefnu tæknirisanna og viðskiptamódel okkar byggir ekki á því að vita allt um þig til að spá fyrir um hvenær þú ætlir að kaupa nýjan tannbursta. Á meðan flestir vafrar gera vafur þitt að gögnum til þess að selja og persónugreina þig í hagnaðarskyni, þá er Vivaldi evrópskur valkostur sem virðir friðhelgi þína.
Með innbyggðri auglýsinga- og rekjaravörn í Vivaldi, getur þú séð vefsíður hlaðast upp hratt og verndað tækin þín fyrir skaðlegum auglýsingum og rekjurum.
Haltu bara áfram að vafra eins og venjulega, við losum þig við þessar pirrandi auglýsingar.
Virkjaðu auglýsinga og rekjaravörn og vafraðu hratt
Þegar vafrinn þinn er upptekinn við að hlaða niður auglýsingum – borðum, sprettigluggum, teiknimyndum, sjálfspilandi myndböndum – hægir það á vafrinu.
Auglýsinga og rekjaravörnin í Vivaldi styður ólíka lista yfir vefslóðir sem vitað er að geyma truflandi auglýsingar og lokum á beiðnir um þessar vefslóðir. Þannig hleður þú aldrei niður þessum auglýsingum og þú vafrar hraðar.
Það er betra að hafa innbyggða auglýsingavörn en nota viðbætur
Með auglýsinga- og rekjaravörninni okkar, þarftu ekki að sækja viðbætur eins og Adblock eða Adblock Plus.
Þótt viðbætur geti oft komið að góðum notum, geta þær skapað samhæfingarvanda. Vivaldi vafrinn er hlaðinn eiginleikum sem eru hannaðir til þess að virka vel saman. Okkar markmið er að stóla sem minnst á þriðja aðila.
Og ef það er það sem þú vilt, þá eru viðbætur ávallt valkostur.
Vertu örugg/ur með innbyggða auglýsingavörn
Með innbyggðri auglýsinga- og rekjaravörn, losnar þú við auglýsingarekjara sem geta ógnað friðhelgi þinni.
Margar netauglýsingar notast við sömu tækni og rekjarar. Þær elta þig um vefheima og safna dýrmætum upplýsingum um þig, til þess að persónugreina þig og græða á gögnunum þínum. Ekki leyfa það!
Komdu í veg fyrir að tækin þín sýni óprúttnar auglýsingar
Án auglýsingavarna geta netauglýsingar dreift vírusum og spilliforritum sem geta haft alvarleg áhrif á tölvuna og gögnin þín. "Spilliauglýsingar" beina þér á svindlsíður til að hlaða niður sýktum skrárm eða til að smella á hlekki sem reynast vera annað en þeir gefa sig út fyrir.
Notaðu innbyggða auglýsinga- og rekjaravörn til þess að verjast spilliforritum í formi viðbóta
Viðbætur frá þriðja aðila keyra í vafranum og geta njósnað um þig. Verndaðu gögnin þín og tæki með innbyggðu lausnunum okkar.
Þitt val skiptir máli
Öpp, þar með talin auglýsingavarnaröpp, afla sér tekna á ólíkan hátt.
Það er kaldhæðnislegt en mörg auglýsingavarnar öpp fylgjast með notendum, búa til prófíla af þeim og selja gögnin til þess að fjármagna starfsemi sína.
Vivaldi vafrinn er öðruvísi. Okkar markmið er að vernda gögnin þín. Við bjóðum upp á innbyggða auglýsingavörn til þess að vernda þig gegn verstu auglýsingunum.
Við rekjum ekki spor þín.
Við búum ekki til prófíl.
Við seljum ekki gögnin þín (við erum ekki með þau).
Áður en þú tekur ákvörðun skaltu spyrjar þig þessa: hvaða viðskiptamótel notar auglýsingavarnarappið? Þetta er okkar.
Vertu meðvituð/meðvitaður
Það eru ekki allar auglýsingar eins. Við hjá Vivaldi erum á móti njósnahagkerfinu og ágengum auglýsingum sem byggja á því að njósna um notendur. En margar síður sem þú heimsækir daglega reiða sig á efnisauglýsingar til tekjuöflunar og munu því lenda í vandræðum þegar auglýsingavarnir eru öflugar.
Við erum ekki á móti heiðvirðum auglýsingum. Efnisauglýsing sem passar við síðuna sem þú ert að lesa, og eltir þig ekki á eftir, er sanngjörn svo síðan geti greitt höfundum sínum. Auglýsingarnar sem við erum á móti eru þær sem elta þig og persónugreina þig. Þær rekja ferðir þínar af einni síðu á aðra og muna hluti um þig sem þú ætlaðir ekki að deila. Innbyggð auglýsinga- og rekjavörn gerir þessum illskeyttu auglýsingum lífið leitt!
Við styðjum frjálst internet og viljum því að vefsíður haldi áfram að afla tekna. Þess vegna höfum við valið „vægt“ sem sjálfgefna stillingu. Hún lokar á flesta þekkta rekjara og sumar auglýsingar, en ólíklegt er að hún valdi því að einhverjar síður hætti að virka.
Þú ert ávallt við stjórnvölinn í Vivaldi: þú ákveður hvernig þú vilt að vefsíður birtist og hvaða efni þú vilt loka á. Þú getur valið sjálfgefna vörn í stillingum eða þegar þú setur Vivaldi upp í fyrsta sinn. Varnarstigið sem þú velur þar gildir um allar vefsíður, en þú færð alltaf meira í Vivaldi. Auglýsingavörn ætti ekki að vera allt eða ekkert. Í Vivaldi geturðu ákveðið hversu mikið af netinu sleppur í gegn, á einni síðu í einu, á öllum tækjum sem þú notar. Þannig stýringar ætti vafri að bjóða notendum sínum uppá.
Njóttu ókeypis auglýsingavarnar og byrjaðu að kanna
Auglýsingavarnir í Vivaldi eru alveg ókeypis, enginn falinn kostnaður.
Okkar markmið er að smíða öflugan, persónulegan og prívat vafra sem gerir þér kleift að rannsaka vefinn á þínum forsendum. Þú skalt því bara gleyma auglýsinguum og byrja að vafra.
Algengar spurningar
-
Hvað er auglýsingavörn?
Auglýsingavarnir er hugbúnaður sem lokar á vefauglýsingar. Þær koma í veg fyrir að auglýsingar birtist á vefsíðum. Varnirnar eiga sér yfirleitt stað í vafranum – sem innbyggð vörn eða með vafraviðbótum eins og t.d. AdBlock eða AdBlock Plus. Flestar varnir og YouTube varnir fjarlæga auglýsingar áður en þær hlaðast niður og birtast á vefsíðu.
-
Hvernig virka auglýsingavarnir
Flestar auglýsingavarnir byggja á tvenns konar tækni.
Í fyrsta lagi þá taka þær við beiðnum frá vafranum og bera saman umbeðna vefslóð við lista af lénum og vefslóðum sem eru þekktar auglýsingaslóðir. Ef umbeðin vefslóð er á listanum, er beiðninni hafnað og vefsíðan sækir ekki auglýsinguna.
Að því búnu leita auglýsingavarnir að vísbendingum á síðunni þar sem auglýsingarnar birtast venjulega og fela þær. Þessi aðgerð lokar á sprettiglugga sem hugsanlega ekki var lokað á í upphafi og felur líka auð svæði þar sem áður voru auglýsingar.
-
Er lokað á allar auglýsingar með auglýsingavörnum?
Þar sem auglýsingavarnir treysta á lista yfir vefslóðir sem eru þekktar fyrir að dreifa auglýsingum, er tæknilega séð ekki hægt að loka á 100% auglýsinga. Þeir sem taka saman listana geta ómögulega vitað af og fundið allt sem til er. Auk þess þá breytist internetið stöðugt og nýjar auglýsingalindir birtast en aðrar hverfa.
-
Safna auglýsingavarnir gögnum?
Öppin safna gögnum á ólíkan hátt. Við mælum með því að þú lesir vel skilmála þeirrar auglýsingavarnar sem þú ert að hugsa um að sækja. Auglýsingavörn Vivaldi rekur ekki ferðir notenda sinna. Þar að auki berjumst við almennt gegn rekjurum og upplýsingaöflun um notendur.
-
Hvernig á að virkja auglýsingavörn í Vivaldi vafranum?
Það er sjálfgefið í Vivaldi að auglýsinga- og rekjaravarnir eru virkjaðar.
Þegar þú hleður niður og setur upp vafrann, munum við bjóða þér að velja hvaða varnarstig þú vilt hafa. Þú munt sjá að sjálfgefna stillingin er „Væg“, en það eru þrír aðrir valkostir í boði: „Slökkt“ „Öflug“ eða „Ágeng“. Þú getur breytt þessari stillingu hvenær sem er með því að smella á skjaldartáknið fremst í veffangastikunni eða í stillingum.
Í Vivaldi er það sjálfgefið að auglýsingavarnir leyfa auglýsingar, sem rekja ekki ferðir þínar, að birtast á leitarvélasíðum samstarfsaðila okkar. Þú getur lokað á þær með því að slökkva á stillingunni „Leyfa auglýsingar frá samstarfsaðilum“ í friðhelgis- og öryggisstillingum, en hafðu í huga að það hefur áhrif á tekjurnar okkar.
-
Hvernig á að slökkva á auglýsingavörn?
Þú getur slökkt á auglýsinga- og rekjaravörn hvenær sem er. Farðu í skjaldartáknið á veffangastikunni eða í friðhelgi og öryggi í stillingum og veldu „slökkt". Þú getur breytt þessu hvenær sem er.
-
Hvernig lokar Vivaldi vafrinn á auglýsingar?
Við styðjumst við lista yfir vefslóðir sem vitað er að geyma truflandi auglýsingar og lokum á að sækja gögn eftir þessu vefslóðum.
Auglýsingavörnin okkar byggir á sömu aðferðafræði og flestar aðrar auglýsingavarnir. Í henni er sjálfvirk efnislokun sem skilgreinir hvað lokað er á.
-
Hvaða lokunarlista notar Vivaldi?
Vivaldi er forstilltur með úrvali af þekktum varnarlistum, eins og EasyList, EasyPrivacy, nokkrum af listum Fanboy og lista Peter-Lowe. Hvaða listar eru virkjaðir fer eftir því hvaða varnarstig þú velur. Að auki getur þú sérsniðið listana sem eru í boði á hverju stigi með því að breyta hvaða auglýsingavarnarstigi sem er, eða búið til algjörlega sérsniðið stig. Þú getur virkjað eða slökkt á listum og líka flutt inn aðra lista sem við bjóðum ekki sjálfvirkt upp á.
-
Hvernig á að sérsníða auglýsingavarnir fyrir einstakar síður?
Þegar þú ert komin(n) á síðua, smellirðu á skjaldartáknið í veffangastikunni og breytir varnarstiginu í „Slökkt“, „Vægt“, „Öflugt“ eða „Ágengt“.
-
Hvernig á að skoða fjölda auglýsinga sem lokað var á?
Í auglýsingavörn Vivaldi vafrans getur þú skoðað fjölda auglýsinga sem lokað var á með því að smella á skjaldartáknið til vinstri í veffangastikunni. Gættu þess að þú hafir valið að minnsta kosti lágmarksvörn, smelltu á skjaldartáknið og þú sérð nákvæmlega hvað þú hefur lokað á margar agulýsingar.