Búið er að uppfæra vafrann þinn
Skrunaðu niður til þess að sjá nýjungar
Nýtt útlit fyrir nýja tíma
Með 8.0 kynnum við nýja hönnunarstefnu sem gerir notendaviðmótið heildstæðara. Allar tækjastikur eru nú hluti af sameinuðum ramma sem umlykur allan vafrann. Þú munt sjá að þemu flæða yfir allan gluggann, sem gerir það að verkum að viðmótshlutirnir virðast vera hluti af heild í stað þess að vera einangruð lög.
Ef þú ert að nota sérsniðið þema, getur þú prófað nýja útlitið með því að fara í Stillingar > Þemu > Ritill > Litastilling > Sameinað
Forstillt útlit
Það ætti ekki að vera yfirþyrmandi upplifun að skipta um vafra. Vivaldi býður nú upp á sex vandlega samsettar uppsetningar sem auðvelda nýjum notendum að setja vafrann upp: Einfaldur, klassískur, lóðrétt til vinstri, lóðrétt til hægri, fela sjálfvirkt eða neðst. Færri ákvarðanir, öflugri aðgerðir. Uppsetningarnar eru í boði þegar vafrinn er settur upp í fyrsta sinn eða í stillingum hvenær sem þú vilt breyta til.