Valkostur við Thunderburd sem er innbyggður í vafrann þinn

Hugmyndafræði Vivaldi er einföld - þú átt að stjórna því hvernig póstkerfið þitt lítur út og hvernig það virkar.

Hlaða niður Vivaldi

Hann er ókeypis og í boði fyrir Windows, macOS og Linux.

Láttu póstkerfið þitt vinna eins og hentar þér

Vivaldir póstkerfið lætur þig um stjórnina. Á meðan póstkerfi eins og Thunderbird hanna vinnuflæðið fyrir þig, getur þú sérsniðið Vivaldi póstinn að þínu þörfum.

Skipuleggðu alla reikningana þína

Vivaldi póstur leysti vandamálin sem hlaðast upp þegar maður er með marga póstreikninga og helling af skeytum. Njóttu þess að fara í gegnum alla póstreikningana þína í einu og sama innhófinu.

Prófaðu sýnileikarofana

Þægilegt sett af sýnileikarofum spara tíma með því að gera þér kleifta að hoppa á milli ólíkra viðmóta og útlits.

Kynntu þér málið

Skautaðu í gegnum innhólfið þitt

Notaðu sérsniðna lyklaborðsflýtilykla til þess að vinna hraðar með tölvuskeyti. Notaðu fram og tilbaka hnappinn til þess að hoppa á á milli "sögu" og viðmóts um leið og þú vinnur.

Leitaðu í öllum skeytunum þínum

Gagnagrunnurinn er hornsteinninn í Vivaldi pósti. Hann er bæði hraðvirkur og öflugur, þannig finnur þú það sem þú leitar að fljótt og örugglega og getur snúið þér að mikilvægari verkefnum.

Vivaldi m.v. Thunderbird Vivaldi Mail Thunderbird
Sérsníðanlegur með deilanlegum þemum og viðmótsstillingum Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Snjöll umsýsla með samtalsþræði (hoppa yfir í samtalsþráð) Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sjálfvirk greining tengiliða Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Fullur aðgangur þótt þú sért ótengd/ur Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sérsniðnar músabendingar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sjálfvirk póstlistagreining og síun Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Leitir má vista sem nýja síu Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Hægt er að setja skeyti á bið í úthólfi Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggt dagatal Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Innbyggður lesari fyrir strauma Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Innbyggt í vafrann Fullur stuðningur Enginn stuðningur

Okkar aðferð við að koma skipulagi á póstinn þinn

  • Kynntu þér hvað það er sem gerir viðmótið á Vivaldi póstinum svona sérstakt
  • Sjáðu hvað það er auðvelt að koma skipulagi á hlutina
  • Kíktu bak við tjöldin á hverjum og einum eiginleika
Skoðaðu eiginleikana í Vivaldi póstinum

Hugsaðu út fyrir möppuna

Eitt skeyti getur birst í mörgum möppum eða viðmótum. Ekki eyða tíma í að róta eftir þeim í haug af möppum. Notaðu tímann í að búa til viðmót sem sýna þér skeytin sem skipta máli.

Óséð og ólesið

Það eru tveir teljarar við hliðina á möppunum í Vivaldi póstkerfinu. Glæný skeyti sem þú hefur ekki séð ennþá, kallast óséð. Skeyti sem þú hefur séð en ekki gert neitt með eru ólesin.

Tryggðu friðhelgi þína á ný

Vivaldi póstur safnar ekki upplýsingum um hvað þú gerir á netinu og við reynum að hindra aðra í því að rekja ferðir þínar.

Það er bæði fljótlegt og auðvelt að skipta úr Thunderbird yfir í Vivaldi.

Þarftu fleiri rök til þess að skipta yfir í Vivaldi póst?

Hér eru nokkrar fleiri ástæður fyrir því af hverju Vivaldi póstur er besta póstkerfið fyrir ofurnotendur eins og þig.

Innbyggt dagatal

Sendu og taktu á móti boðum á viðburði á einfaldan hátt með Vivaldi dagatalinu.

Innbyggður lesari fyrir strauma

Nýir straumar frá Vivaldi lesara fyrir strauma birtast eins og hver önnur skeyti í póstglugganum.

Vafraávinningur

Póstforrit Vivaldi er byggt á samta trausta grunni og uppáhalds vafrinn þinn. Sameinaðu þúsundir skeyta í eitt samtvinnað innhólf.

Gagnagrunnurinn

Öll skeyti, merki, síur og leitir eru geymd á þínum disk í Vivaldi vafranum. Skeyti frá öllum þínum reikningum eru lykluð svo það er hægt að leita án nets.

Vistaðar leitir

Það má vista leitir sem síur. Alveg óþarfi að finna upp hjólið í hvert sinn.

Stuðningur við marga reikninga

Með stuðningi við IMAP og POP3, getur þú bætt við næstum hvaða póstþjónustuaðila sem er.

Treyst af milljónum notenda

Að hafa enga utanaðkomandi fjárfesta gefur okkur frelsi til þess að hlusta á notendurna okkar og byggja með þeim vafra sem við eigum öll skilið.

3 100 000+Virkir notendur
1 600 000+Samfélagsmeðlimir
0Utanaðkomandi fjárfestar

Besta tölvupóstupplifunin er bara handan við hornið

Hlaða niður Vivaldi