Loksins, valkostur við Outlook sem þú hefur alltaf beðið eftir

Vivaldi leyfir þér að stjórna því hvernig póstkerfið þitt lítur út og hvernig það virkar.

Hlaða niður Vivaldi

Hann er ókeypis og í boði fyrir Windows, macOS og Linux.

Smíðaður fyrir risastór innhólf

Hefur þér stundum fundist þú vera að vaxa uppúr póstkerfinu þínu? Vivaldi póstur auðveldar þér að vinna í skeytum frá mörgum reikningum, póstlistum og straumum. Auk þess getur þú sérsniðið og sett upp þitt eigið vinnuflæði.

Skipuleggðu alla reikningana þína

Vivaldi póstur er stjórnstöð skeytanna þinna. Sameinaðu alla póstreikningana þína og sýslaðu með þá á einum stað. Hafðu yfirsýn yfir vinnutengd skeyti, reikninga, póstlista, skólaverkefni o.fl. Allt í vafranum þínum.

Prófaðu sýnileikarofana

Með einum smelli getur þú valið að sýna eða fela lesin skeyti, skeyti frá póstlistum, frá sérsniðnum möppum, straumum og ruslpósti. Skerptu fókusinn með því að raða saman ólíkum listum og uppsetningum - um það snýst Vivaldi!

Kynntu þér málið

Skautaðu í gegnum innhólfið þitt

Sérsniðnir lyklaborðs- og músaflýtilyklar í Vivaldi pósti, hjálpa þér að vinna hraðar með skeyti, spara tíma og minnka stress.

Leitaðu í öllum innhólfunum þínum samtímis

Við hönnuðum gagnagrunninn í Vivaldi þannig að hann væri hraðvirkur og sveigjanlegur svo þú getir fundið það sem þú leitar að hratt og örggulega.

Vivaldi m.v. Outlook Vivaldi Mail Outlook
Sérsníðanlegur með deilanlegum þemum og viðmótsstillingum Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Nákvæm meðhöndlun spjallþráða (Hoppa yfir á spjallþráð) Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sjálfvirk greining tengiliða Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Fullur aðgangur þótt þú sért ótengd/ur Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sérsniðnar músabendingar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sjálfvirk póstlistagreining og síun Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Leitir má vista sem nýja síu Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Hægt er að setja skeyti á bið í úthólfi Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggt dagatal Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Innbyggður lesari fyrir strauma Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Innbyggt í vafrann Fullur stuðningur Enginn stuðningur

Okkar aðferð við að koma skipulagi á póstinn þinn

  • Kynntu þér hvað það er sem gerir viðmótið á Vivaldi póstinum svona sérstakt
  • Sjáðu hvað það er auðvelt að koma skipulagi á hlutina
  • Kíktu bak við tjöldin á hverjum og einum eiginleika
Skoðaðu eiginleikana í Vivaldi póstinum

Hugsaðu út fyrir möppuna

Ekki eyða tíma í að róta eftir skeytum í haug af möppum. Notaðu tímann í að búa til viðmót sem sýna þér skeytin sem skipta máli.

Óséð og ólesið

Það eru tveir teljarar við hliðina á möppunum í Vivaldi póstkerfinu. Glæný skeyti sem þú hefur ekki séð ennþá, kallast óséð. Skeyti sem þú hefur séð en ekki gert neitt með eru ólesin.

Tryggðu friðhelgi þína á ný

Vivaldi póstur safnar ekki upplýsingum um hvað þú gerir á netinu og við reynum að hindra aðra í því að rekja ferðir þínar.

Það er bæði fljótlegt og einfalt að skipta úr Outlook yfir í Vivaldi póst.

Treyst af milljónum notenda

Að hafa enga utanaðkomandi fjárfesta gefur okkur frelsi til þess að hlusta á notendurna okkar og byggja með þeim vafra sem við eigum öll skilið.

3 100 000+Virkir notendur
1 600 000+Samfélagsmeðlimir
0Utanaðkomandi fjárfestar

Þarftu fleiri rök til þess að skipta yfir í Vivaldi póst?

Hér eru nokkrar fleiri ástæður fyrir því af hverju Vivaldi póstur er besta póstkerfið fyrir ofurnotendur eins og þig.

Innbyggt dagatal

Sendu og taktu á móti boðum á viðburði á einfaldan hátt með Vivaldi dagatalinu.

Innbyggður lesari fyrir strauma

Nýir straumar frá Vivaldi lesara fyrir strauma birtast eins og hver önnur skeyti í póstglugganum.

Vafraávinningur

Póstforrit Vivaldi er byggt á samta trausta grunni og uppáhalds vafrinn þinn. Sameinaðu þúsundir skeyta í eitt samtvinnað innhólf.

Gagnagrunnurinn

Öll skeyti, merki, síur og leitir eru geymd á þínum disk í Vivaldi vafranum. Skeyti frá öllum þínum reikningum eru lykluð svo það er hægt að leita án nets.

Vistaðar leitir

Það má vista leitir sem síur. Alveg óþarfi að finna upp hjólið í hvert sinn.

Stuðningur við marga reikninga

Með stuðningi við IMAP og POP3, getur þú bætt við næstum hvaða póstþjónustuaðila sem er.

Besta tölvupóstupplifunin er bara handan við hornið

Hlaða niður Vivaldi