Ofurhraðvirkur valkostur við Mailbird sem þú hefur verið að bíða eftir

Ólíkt Mailbird, lætur Vivaldi póstur þig stjórna því hvernig póstkerfið þitt lítur út og hvernig það virkar.

Hlaða niður Vivaldi

Hann er ókeypis og í boði fyrir Windows, macOS og Linux.

Smíðað fyrir risastóra póstreikninga

Hugvitsamlegt viðmótið í Vivaldi póstinum, gerir þér kleift að spara tíma, skerpa fókusinn og glíma við gríðarlegt magn skeyta - burtséð frá því hvað þú ert með marga reikninga.

Skipuleggðu alla reikningana þína

Vivaldi póstur er ekki lausn sem er eins fyrir alla. Þú getur hannað og sérsniðið vinnuflæði sem hentar þér. Farðu hraðar í gegnum skeytin þín og snúðu þér svo að mikilvægari verkefnum.

Svissaðu fram og til baka að vild

Vivaldi póstur auðveldar þér að hafa yfirsýn yfir verkefnin og halda fókus. Þú einfaldlega velur útlit sem henta þér og hoppar svo á milli ólíkra viðmóta.

Kynntu þér málið

Farðu á ofurhraða í gegnum innhólfið þitt

Farðu í gegnum innhólfið þitt hratt og örugglega með 16 breytanlegum músa- og lyklaborðsflýtilyklum - hentar fyrir endurteknar aðgerðir eins og að skrifa tölvupóst, svara skeytum o.fl.

Finndu það sem þú þarft

Gagnagrunnur Vivaldi pósts er svo öflugur að þú getur á augabragði leitað í völdu hólfi að hvaða orði sem er eða víkkað út leitina og leitað í öllum skeytum - líka þegar þú ert ótengd/ur.

Vivaldi m.v. Mailbird Vivaldi Mail Mailbird
Sérsníðanlegur með deilanlegum þemum og viðmótsstillingum Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Nákvæm meðhöndlun spjallþráða (hopp yfir á spjallþráð) Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sjálfvirk greining tengiliða Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Fullur aðgangur þótt þú sért ótengd/ur Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sérsniðnar músabendingar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sjálfvirk póstlistagreining og síun Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Leitir má vista sem nýja síu Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Hægt er að setja skeyti á bið í úthólfi Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggt dagatal Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Innbyggður lesari fyrir strauma Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggt í vafrann Fullur stuðningur Enginn stuðningur

Okkar aðferð við að koma skipulagi á póstinn þinn

  • Kynntu þér hvað það er sem gerir viðmótið á Vivaldi póstinum svona sérstakt
  • Sjáðu hvað það er auðvelt að koma skipulagi á hlutina
  • Kíktu bak við tjöldin á hverjum og einum eiginleika
Skoðaðu eiginleikana í Vivaldi póstinum

Hugsaðu út fyrir möppuna

Eitt skeyti getur birst í mörgum möppum eða síum. Ekki eyða tíma í að róta eftir þeim í haug af möppum. Notaðu tímann í að búa til möppur og síur sem sýna þér skeytin sem skipta máli!

Óséð og ólesið

Það eru tveir teljarar við hliðina á möppunum í Vivaldi póstinum. Glæný skeyti sem þú hefur ekki séð ennþá, kallast óséð. Skeyti sem þú hefur séð en ekki gert neitt með eru í hinum teljaranum.

Náðu aftur stjórn á gögnunum þínum

Vivaldi póstur safnar ekki upplýsingum um hvað þú gerir á netinu og við reynum að hindra aðra í því að rekja ferðir þínar.

Það er bæði auðvelt og fljótlegt að skipta úr Mailbird yfir í Vivaldi póst.

Treyst af milljónum notenda

Að hafa enga utanaðkomandi fjárfesta gefur okkur frelsi til þess að hlusta á notendurna okkar og byggja með þeim vafra sem við eigum öll skilið.

3 100 000+Virkir notendur
1 600 000+Samfélagsmeðlimir
0Utanaðkomandi fjárfestar

Þarftu fleiri rök til þess að skipta yfir í Vivaldi póst?

Hér eru nokkrar fleiri ástæður fyrir því af hverju Vivaldi póstur er besta póstkerfið fyrir ofurnotendur eins og þig.

Innbyggt dagatal

Sendu og taktu á móti boðum á viðburði á einfaldan hátt með Vivaldi dagatalinu.

Innbyggður lesari fyrir strauma

Nýir straumar frá Vivaldi lesara fyrir strauma birtast eins og hver önnur skeyti í póstglugganum.

Vafraávinningur

Póstforrit Vivaldi er byggt á samta trausta grunni og uppáhalds vafrinn þinn. Sameinaðu þúsundir skeyta í eitt samtvinnað innhólf.

Gagnagrunnurinn

Öll skeyti, merki, síur og leitir eru geymd á þínum disk í Vivaldi vafranum. Skeyti frá öllum þínum reikningum eru lykluð svo það er hægt að leita án nets.

Vistaðar leitir

Það má vista leitir sem síur. Alveg óþarfi að finna upp hjólið í hvert sinn.

Stuðningur við marga reikninga

Með stuðningi við IMAP og POP3, getur þú bætt við næstum hvaða póstþjónustuaðila sem er.

Besta tölvupóstupplifunin er bara handan við hornið

Hlaða niður Vivaldi