Er em póstforritið farið að reyna á taugarnar?
Heilsaðu þá upp á Vivaldi póstforritið

Vivaldi póstur lætur þig um að stjórna því hvernig póstkerfið þitt lítur út og hvernig það virkar.

Hlaða niður Vivaldi

Hann er ókeypis og í boði fyrir Windows, macOS og Linux.

Ný bylgja framúrskarandi fyrirtækja

Í stað staðlaðs vinnuflæðis, býður Vivaldi póstur upp á valmöguleika, þannig að þú getir sérsniðið rétta vinnuflæðið fyrir þig.

Skipuleggðu alla reikningana þína

Í Vivaldi pósti getur þú unnið með öll skeytin þín í sama flipa. Þar sem póstkerfið hleður skeytunum niður í tölvuna þína, hefur þú aðgang að öllum tölvupóstreikningunum þínum í einu, sameinuðu innhólfi - líka þegar þú ert ótengd/ur.

Prófaðu sýnileikarofana

Þegar þú ert að fylgjast með risastórum tölvupóstreikningum er gott að minnka óþarfa truflanir. Með einum smelli getur þú valið að fela eða sýna lesin skeyti, sem og skeyti sem tilheyra póstlistum, sérsniðnum möppum, straumum, ruslpósti og eyddum skeytum.

Kynntu þér málið

Skautaðu í gegnum innhólfið þitt

Í Vivaldi pósti, getur þú notað sérsniðna lyklaborðs- og músa-flýtilykla. Það er fljótlegasta leiðin til þess að rata um innhólfið og skanna öll skeytin þín á augabrgði.

Leitaðu í öllum innhólfunum í einu

Vivaldi póstur gerir þér kleift að leita í öllum skeytagagnagrunninum þínum með einungis nokkrum ásláttum, og finna fljótt og örugglega það sem þú leitar að.

Vivaldi póstur m.v. eM Client Vivaldi Mail em Client
Sérsníðanlegur með deilanlegum þemum og viðmótsstillingum Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Nákvæm meðhöndlun (hoppa yfir á spjallþráð) Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sjálfvirk greining tengiliða Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Fullur aðgangur þótt þú sért ótengd/ur Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Sérsniðnar músabendingar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sjálfvirk póstlistagreining og síun Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Leitir má vista sem nýja síu Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Hægt er að setja skeyti á bið í úthólfi Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggt dagatal Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Innbyggður lesari fyrir strauma Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggt í vafrann Fullur stuðningur Enginn stuðningur

Okkar aðferð við að koma skipulagi á póstinn þinn

  • Kynntu þér hvað það er sem gerir viðmótið á Vivaldi póstinum svona sérstakt
  • Sjáðu hvað það er auðvelt að koma skipulagi á hlutina
  • Kíktu bak við tjöldin á hverjum og einum eiginleika
Skoðaðu eiginleikana í Vivaldi póstinum

Hugsaðu út fyrir möppuna

Í Vivaldi pósti er auðvelt að sjá mikilvæg skeyti strax. Ekki eyða tíma í að róta eftir þeim í haug af möppum. Notaðu tímann í að búa til síur sem sýna þér skeytin sem skipta máli.

Óséð og ólesið

Það eru tveir teljarar við hliðina á möppunum í Vivaldi póstkerfinu. Glæný skeyti sem þú hefur ekki séð ennþá, kallast óséð. Skeyti sem þú hefur séð en ekki gert neitt með eru ólesin.

Tryggðu friðhelgi þína á ný

Vivaldi póstur safnar ekki upplýsingum um hvað þú gerir á netinu og við reynum að hindra aðra í því að rekja ferðir þínar.

Það er fljótlegt, einfalt og skemmtilegt að skipta úr eM Client yfir í Vivaldi póst.

Treyst af milljónum notenda

Að hafa enga utanaðkomandi fjárfesta gefur okkur frelsi til þess að hlusta á notendurna okkar og byggja með þeim vafra sem við eigum öll skilið.

3 100 000+Virkir notendur
1 600 000+Samfélagsmeðlimir
0Utanaðkomandi fjárfestar

Þarftu fleiri rök til þess að skipta yfir í Vivaldi póst?

Hér eru nokkrar fleiri ástæður fyrir því af hverju Vivaldi póstur er besta póstkerfið fyrir ofurnotendur eins og þig.

Innbyggt dagatal

Sendu og taktu á móti boðum á viðburði á einfaldan hátt með Vivaldi dagatalinu.

Innbyggður lesari fyrir strauma

Nýir straumar frá Vivaldi lesara fyrir strauma birtast eins og hver önnur skeyti í póstglugganum.

Vafraávinningur

Póstforrit Vivaldi er byggt á samta trausta grunni og uppáhalds vafrinn þinn. Sameinaðu þúsundir skeyta í eitt samtvinnað innhólf.

Gagnagrunnurinn

Öll skeyti, merki, síur og leitir eru geymd á þínum disk í Vivaldi vafranum. Skeyti frá öllum þínum reikningum eru lykluð svo það er hægt að leita án nets.

Vistaðar leitir

Það má vista leitir sem síur. Alveg óþarfi að finna upp hjólið í hvert sinn.

Stuðningur við marga reikninga

Með stuðningi við IMAP og POP3, getur þú bætt við næstum hvaða póstþjónustuaðila sem er.

Besta tölvupóstupplifunin er bara handan við hornið

Hlaða niður Vivaldi