Valkostur við Apple póst, smíðaður fyrir risavaxin innhólf

Vivaldi póstur auðveldar þér að vinna með mörg tölvupóstföng, póstlista og strauma í einu og sama innhólfinu.

Hlaða niður Vivaldi

Hann er ókeypis og í boði fyrir Windows, macOS og Linux.

Taktu innhólfið þitt í sátt

Á meðan flest póstkerfi og þjónustur eru sett upp með ákveðið vinnulag í huga - býður Vivaldi pósturinn þér að stjórna því sjálf/ur hvernig póstkerfið lítur út og virkar.

Sameinaðu innhólfið þitt

Vivaldi póstur sameinar alla póstreikningana þína og póstlistana í einu notendavænu viðmóti, þannig að öll skeytin þín eru alltaf innan handar. Það skiptir ekki máli hvað þú ert með marga reikninga, þú getur ráðið við ómældan fjölda skeyta hratt og örugglega.

Skiptu um viðmót á augabragði

Nokkrir valmöguleikar gera þér kleift að spara tíma og skerpa á fókus með því geta hoppað á milli ólíkra viðmóta og útlits.

Kynntu þér málið

Skautaðu í gegnum innhólfið þitt

Notaðu sérsniðna lyklaborðsflýtilykla til þess að vinna hraðar með tölvuskeyti. Notaðu fram og tilbaka hnappinn til þess að hoppa á á milli "sögu" og viðmóts um leið og þú vinnur.

Leitaðu í öllum innhólfunum í einu

Vivaldi póstur merkir öll skeyti frá öllum þínum reikningum og vistar þau á þínu eigin tæki. Þetta þýðir að þú hefur alltaf aðgang að þessum skeytum, líka þegar þú ert ótengd/ur.

Vivaldi póstur m.v. Apple póst Vivaldi Mail Apple Mail
Sérsníðanlegur með deilanlegum þemum og viðmótsstillingum Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Snjöll umsýsla með samtalsþræði (hoppa yfir í samtalsþráð) Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sjálfvirk greining tengiliða Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Fullur aðgangur þótt þú sért ótengd/ur Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sérsniðnir lyklaborðsflýtilyklar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sérsniðnar músabendingar Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Sjálfvirk póstlistagreining og síun Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Leitir má vista sem nýja síu Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Hægt er að setja skeyti á bið í úthólfi Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggt dagatal Fullur stuðningur Enginn stuðningur
Innbyggður lesari fyrir strauma Fullur stuðningur Fullur stuðningur
Innbyggt í vafrann Fullur stuðningur Enginn stuðningur

Okkar aðferð við að koma skipulagi á póstinn þinn

  • Kynntu þér hvað það er sem gerir viðmótið á Vivaldi póstinum svona sérstakt
  • Sjáðu hvað það er auðvelt að koma skipulagi á hlutina
  • Kíktu bak við tjöldin á hverjum og einum eiginleika
Skoðaðu eiginleikana í Vivaldi póstinum

Hugsaðu út fyrir möppuna

Búðu til viðmót sem sýnir eingögnu þau skeyti sem skipta máli fyrir þig. Óþarfi að böðlast í gegnum möppur eða skrolla í gegnum langa lista: þú einfaldlega smellir á það viðmót sem þú villt og bomm! Þú ert komin/nn með það sem þú leitaðir að.

Óséð og ólesið

Það eru tveir teljarar við hliðina á möppunum í Vivaldi póstkerfinu: Óséð og ólesið. Hið fyrra (Óséð) sýnir fjölda nýrra skeyta sem þú hefur aldrei séð áður, en skeyti sem þú hefur séð en ekki gert neitt með eru í hinum teljaranum (Ólesið).

Segðu bless við rakningu

Vivaldi póstur fylgist ekki með þér. Og við reynum að hindra aðra í að rekja ferðir þínar gegnum tölvupósta.

Það er bæði auðvelt og fljótlegt að skipta úr Apple pósti yfir í Vivaldi póst.

Treyst af milljónum notenda

Að hafa enga utanaðkomandi fjárfesta gefur okkur frelsi til þess að hlusta á notendurna okkar og byggja með þeim vafra sem við eigum öll skilið.

3 100 000+Virkir notendur
1 600 000+Samfélagsmeðlimir
0Utanaðkomandi fjárfestar

Þarftu fleiri rök til þess að skipta yfir í Vivaldi póst?

Hér eru nokkrar fleiri ástæður fyrir því af hverju Vivaldi póstur er besta póstkerfið fyrir ofurnotendur eins og þig.

Innbyggt dagatal

Sendu og taktu á móti boðum á viðburði á einfaldan hátt með Vivaldi dagatalinu.

Innbyggður lesari fyrir strauma

Nýir straumar frá Vivaldi lesara fyrir strauma birtast eins og hver önnur skeyti í póstglugganum.

Vafraávinningur

Póstforrit Vivaldi er byggt á samta trausta grunni og uppáhalds vafrinn þinn. Sameinaðu þúsundir skeyta í eitt samtvinnað innhólf.

Gagnagrunnurinn

Öll skeyti, merki, síur og leitir eru geymd á þínum disk í Vivaldi vafranum. Skeyti frá öllum þínum reikningum eru lykluð svo það er hægt að leita án nets.

Vistaðar leitir

Það má vista leitir sem síur. Alveg óþarfi að finna upp hjólið í hvert sinn.

Stuðningur við marga reikninga

Með stuðningi við IMAP og POP3, getur þú bætt við næstum hvaða póstþjónustuaðila sem er.

Besta tölvupóstupplifunin er bara handan við hornið

Hlaða niður Vivaldi