Búið er að uppfæra vafrann þinn
Skrunaðu niður til þess að sjá nýjungar
Festu mikilvæga flipa
Sumir flipar eiga skilið sérstakan stað á flipastikunni þinni. Nú geturðu fest þá og haldið þeim alltaf innan seilingar. Ýttu lengi á hvaða flipa sem er og veldu „Festa flipa“ til að festa hann fremst á flipastikunni.
Vertu varin(n) á meðan þú vafrar
Síminn þinn fylgir þér hvert sem er, en þú þarft ekki að leyfa fyrirtækjum að gera slíkt hið sama. Opnaðu nýja friðhelgismælaborðið með því að smella á skjöldinn í veffangastikunni, þá færðu góðar yfirsýn yfir rekjara og auglýsingar sem Vivaldi hefur stoppað á meðan þú vafraðir. Þú getur valið samskonar vörn fyrir allar síður eða aðlagað að hverri síðu fyrir sig.
Veldu lykilorðastjóra
Vivaldi er með góðan, innbyggðan lykilorðastjóra, en þú gætir viljað nota lykilorðastjóra frá þriðja aðila sem þú þekkir og treystir. Þitt er valið og því höfum við bætt við nýrri stillingu sem kallast „Sjálfvirk útfylling“ þar getur þú valið hvar þú geymir viðkvæm gögn.
Leitaðu í einkaham, hraðar
Þú getur nú leitað með völdum texta í einkaflipum. Merktu hvaða texta sem er á síðu og þú munt sjá möguleika á að leita að honum í nýjum einkaflipa. Fljótlegt og þægilegt og leitarsaga þín er prívat.
Slökkva á dragðu-til-að-endurhlaða
Ef þú hefur lent í að endurhlaða síðu við að skruna, þá er þetta fyrir þig. Farðu í Stillingar og slökktu á draga-til-að-endurhlaða. Þá týnir þú ekki lengur hvar þú ert fyrir sakir spennu við að fletta.