Algengar spurningar
-
Hvernig get ég styrkt?
Til þess að styrkja:
- Farðu á styrktarsíðuna.
- Veldu styrktarupphæðina og ýttu á Áfram.
- Sláðu inn kreditkortaupplýsingar og smelltu á 'Borga $'.
- Ef þess er krafist af útgefanda kortsins, þarftu að staðfesta greiðslu með 3-D Secure 2.0 auðkenningu.
-
Af hverju biðjið þið um framlög?
Fullkomið gagnsæi: Vivaldi er fyrirtæki í eigu starfsmanna. Við öflum tekna í gegnum leitarvélar og með samstarfssamningum um bókamerki. Þú getur lesið um viðskiptamódelið okkar hér. Þrátt fyrir það erum við oft spurð af aðdáendum vafrans hvort hægt sé að leggja okkur lið með framlögum. Við viðljum að sjálfsögðu hlusta á notendur, þannig að við bjóðum nú upp á þennan valmöguleika.
-
Hvernig verður mitt framlag notað?
Framlagið þitt verður notað til þess að fjármagna langtíma þróun á vörum og þjónustum Vivaldi vafrans.
-
Hvernig stendur Vivaldi vörð um persónulegar upplýsingar um mig?
Við hvorki söfnum né geymum upplýsingar um styrktaraðila. Þú getur lesið persónuverndarstefnu okkar hér. Í umsýslu með greiðslumiðlun, notum við þjónustu frá þriðja aðila sem heitir Stripe. Hægt er að lesa hvernig þeir meðhöndla gögnin þín í persónuverndarstefnu þeirra.
-
Hvar get ég nálgast ýtarlegri upplýsingar um Vivaldi?
Þú getur kynnt þér vafrann hér: https://vivaldi.com/ og fyrirtækið hér: https://vivaldi.com/company/.
-
Hvert get ég sent tölvupóst ef ég vil nánari upplýsingar um framlög?
Ef þú ert með spurningar um styrktarframlög, vinsamlegast sendu skeyti á [email protected].