Búið er að uppfæra vafrann þinn

Styrktu okkur svo við getum haldið áfram að smíða flottasta vafrann.

Betri auglýsinga- og rekjaravörn

Innbyggða auglýsinga- og rekjaravörnin okkar hefur verið endurhönnuð frá grunni og er öflguri en nokkru sinni fyrr.

Veldu á milli „Slökkt“, „Vægt“, „Öflugt“ eða „Ágengt“ eftir því hversu mikla vörn þú villt, annaðhvort sem sjálfgefna stillingu eða fyrir hverja vefsíðu fyrir sig. Þú getur líka búið til sérsniðin stig og flutt inn uppáhalds varnarlistana þína af vefslóð.

Afrita hreinsaðan hlekk

Afritaðu og deildu hlekkjum án rekjara sem gjarnan er bætt við þá. Góð leið til þess að þú getir vafrað prívat.

Opnaðu flipa í bunka

Flipabunkar skipuleggja vafrið þitt og nú er hægt að setja nýja hlekki nákvæmlega þar sem þeir eiga heima. Ýttu lengi á hlekk á vefsíðu til þess að velja í hvaða bunka ætti að opna hann.

Endurbætt stjórntæki spilunar

Allir opnir flipar með hljóði birtast nú í margmiðlunarstýringu símans, svo þú getur auðveldlega skipt á milli þeirra án þess að opna Vivaldi.

Opna í appi

Þessi nýja stilling í aðalvalmyndinni gerir þér kleift að opna flipa í samsvarandi appi ef það er uppsett í símanum þínum.